Sími: 460 4950
Við á Hólakoti fengum heimsókn á miðvikudaginn frá Villa slökkviliðsstjóra. Hann kom og sýndi okkur myndbandið um Loga og Glóð, ræddi við okkur um rétt viðbrögð við bruna og brunavarnir heimilisins. Við hvetjum ykkur til að taka umræðuna við börnin heima og ræða þessi mál á meðan þau eru í fersku minni. Börnin útskrifuðust svo af námskeiðinu með skírteini uppá það að vera aðstoðarmaður slökkviliðslins. Eftir hádegi fórum við svo í heimsókn niður á stöð þar sem villi sýndi okkur slökkviliðsbílana og tækin sem þau nota. Í lok ferðar voru ljósin og sírerurnar settar á. Myndir frá deginum má sjá í myndasafni deildarinnar.