Deildarstjóra vantar í leikskólann Krílakot á Dalvík
07.06.2012Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir deildarstjóra í 100% framtíðarstarf. Vinnutími er 8:00-16:00.
Hæfnikröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra
- Reynsla af starfi með börnum
Upplýsingar veitir leikskólastjóri, Drífa Þórarinsdóttir í síma 466-1372. Umsóknum og ferilskrá ber að skila í Krílakot eða á netfangið krilakot@dalvik.is Móttaka umsókna verður staðfest. Umsóknarfrestur er til 20.júní 2012.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.
Krílakot er þriggja deilda leikskóli, nemendur skólans eru frá 9 mánaða aldri til 3 ára. Í starfinu er áhersla lögð á umhyggju
og fjölbreytt, skapandi starf og nám í gegnum leik. Krílakot er Grænfánskóli, leggur áherslu á læsi, tónlist og Uppeldi til ábyrgðar.
Kjörorð skólans eru SKÖPUN, GLEÐI, ÞOR













