Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Starf yfirþroskaþjálfa skammtímavistunar laust til umsóknar

18.04.2012

Viltu taka þátt í að móta og stofna skammtímavistun fyrir fötluð börn og ungmenni í Dalvíkurbyggð?

Sveitarfélagið óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi þroskaþjálfa í starf yfirþroskaþjálfa í nýrri skammtímavistun.

Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu.

Starfssvið:
· Felur í sér verkstjórn, umsjón verkefna og/eða samræmingu faglegs starfs
· Sér um þjálfunaráætlanir
· Er öryggisvörður stofnunarinnar
· Mikil samskipti og samvinna við hagsmunaaðila
· Samskipti við foreldra

Menntun og hæfniskröfur:
· Þroskaþjálfamenntun er áskilin
· Reynsla og áhugi á starfi með börnum og ungmennum
· Frumkvæði og þörf til að ná árangri
· Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
· Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
· Hreint sakavottorð

Umsjón með starfinu hefur Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri Dalvíkurbyggðar ( eyrun@dalvikurbyggd.is  )

Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2012.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsóknir á fyrrgreint netfang.

Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfi viðkomandi í starfi. Staðfest verður móttaka á umsóknum í gegnum tölvupóst. Valið verður úr hópi umsækjenda á grundvelli
viðtala og framlagðra gagna. Við ráðningu er jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á að þörf
er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Laun skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Fundargátt
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Information

Viðburðadagatal

« júní 2013 »
m þ m f f l s
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30