17.júní kl. 15:00 verður opnuð málverkasýning með verkum Brimars Sigurjónssonar í Bergi menningarhúsi. Sýningin er önnur sýning af þremur sem haldnar verða á verkum hans á þessu ári. Nafn þessarar sýningar er Undir erlendum áhrifum. Á sýningunni verða sýnd verk Brimars þar sem greinilegra áhrifa þekktra erlendra listamanna gætir. Sigríður Gunnarsdóttir verður með leiðsögn um sýninguna og skýrir tengsl verkanna við hinn stóra listaheim.
Verkefnið er styrkt að Menningarsjóði Eyþings.
Netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Berg menningarhús á Dalvík
var formlega opnað
5. ágúst 2009.