Enn á ný verða jólasveinarnir á ferðinni, þeir koma í heimsókn í menningarhúsið Berg, laugardaginn 18. desember kl. 14:00. Þeir verða þar þrír á ferð, Hurðarskellir, Kjötkrókur og Kertasníkir. Þeir ætla að sprella, syngja, spjalla, dansa í kringum jólatré í salnum í Bergi og vera góðir og skemmtileigir eins og þeir eiga vanda til. Sjáumst í Bergi á laugardaginn.
Netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Berg menningarhús á Dalvík
var formlega opnað
5. ágúst 2009.