Leikverkið Heilsugæslan eftir Lýð Árnason lækni verður sýnt í Bergi menningarhúsi föstudaginn 22. janúar kl. 21:00. Miðaverð er 1.900 kr. og verða miðar seldir við innganginn.
Leikverkið er hápólitískur gamanleikur og hefur fengið mjög góða dóma þar sem það hefur verið sýnt.
Verkið verður sett upp á Kaffihúsinu og þvi tilvalið að setjast niður með léttar veitingar og njóta skemmtilegrar leiksýningar.
Netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Berg menningarhús á Dalvík
var formlega opnað
5. ágúst 2009.