Nú er sýningunum ,, Frumkvöðlar í íslenskri myndlist" og ,, Fram til fortíðar" lokið en þær fengu báðar tvær mjög góðar viðtökur og frábært að hefja starfsemi hússins á tveimur viðlíka glæsilegum sýningum.
23.-27. nóvember verður sett upp nemendasýning frá Grunnskóla Dalvíkurbyggðar en það eru verkgreinakennarar skólans sem að velja muni til sýningar. Fyrstu helgina í aðventu verður svo sett upp sýning tileinkuð aðventu- og jólum og mun hún byggja á nýjum og gömlum munum og myndum sem tengjast jólunum.
Netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Berg menningarhús á Dalvík
var formlega opnað
5. ágúst 2009.