
Síðustu viku maímánaðar lék veðurblíðan heldur betur við okkur á Leikbæ. Mikil útivera einkenndi starfið, léttklædd börn og í lok vikunnar var ákveðið að njóta sólarinnar einnig í hádeginu og borða úti. Við vorum svo heppin að Gústi kokkur sendi okkur pizzu þennan dag og því má segja að um alvöru partý hafi verið að ræða. Svo er bara að vona að þessi blíða sé einungis byrjunin á góðu sumri, krossum fingur fyrir því :-)
Árskógi
621 Dalvík
Sími: 466-1971
Leikskólastjóri: Gitta Ármannsdóttir
leikbaer@dalvikurbyggd.is