Krílakot

Krílakot er þriggja deilda leikskóli þar sem 62 börn á aldrinum 1 árs til 3ja ára una við leik og störf.

Leikskólinn Krílakot tók til starfa haustið 1980 í hluta af núverandi húsnæði skólans, þar sem eru eldri deildir, fataherbergi og gangur, en áður eða frá 1975 (eftir því sem næst verður komist af bókunum framfærslunefndar frá þeim tíma) hafði verið starfræktur leikskóli í Gamla skólanum og síðar í Mímisbrunni (þá í eigu skátafélagsins) . Fyrsti forstöðumaður leikskólans, þá dagheimilis, var Margrét Vallý Jóhannsdóttir. Upphaf leikskólastarfs á Dalvík má rekja allt aftur til ársins 1961 þegar Kvenfélagið Vaka kom á fót barnaleikvelli til að hafa þar barnagæslu á sumrin. Auk Vöku og bæjarfélagsins kom Lionsklúbbur Dalvíkur að þeim framkvæmdum með fjárframlögum. Þar sem hvergi hefur fundist í gögnum neinn víxludagur leikskólans eða hvenær hann var formlega tekinn í notkun í núverandi húsnæði ákváðu leikskólakennarar haustið 1995 upp á sitt eindæmi að afmæli leikskólans skyldi verða 9. september.
Sá hluti sem leikskólinn hóf starfsemi sína í var tekinn í notkun í september 1980. Salur, eldhús, skrifstofa, kaffistofa, ræsting, þvottahús og loft var byggt við árið 1987. Árið 2007 var svo þriðja deildin byggð vestan við húsið ásamt bættri starfsmannaaðstöðu. Leiksvæðið hafði verið stækkað upp í 2.960 fm. eftir að við bættist trjálundur og lóð Móafells. Í gegnum árin hefur leikskólinn farið í gegnum ýmsar stefnur og strauma sem verið hafa í leikskólauppeldi á hverjum tíma og þeir leikskólakennarar sem hér hafa verið hafa lagt mark sitt á starfið á mismunandi vegu. En þrátt fyrir að áherslur starfsins hafi þróast í takt við þessa áhrifaþætti, hefur tónlistaruppeldi ávallt verið í hávegum haft.