Foreldrasamstarf

Í leikskóla er mikilvægt að gott samstarf sé milli heimilis og skóla og þar ríki gagnkvæmt traust og virðing. Dagleg samskipti eru mikilvæg þar sem fram koma upplýsingar um líðan barna og hegðun heima og í leikskólanum, breytingar á högum barnsins og fjölskyldulífi. Foreldrar leikskólabarnanna á Krílakoti eru ávallt velkomnir í leikskólann til að taka þátt og fylgjast með því starfi sem þar fer fram. Reglulega eru síðan ýmsar uppákomur sem foreldrum er sérstaklega boðið til og oft á tíðum koma ömmur og afar og systkini einnig. Allt er þetta liður í að skapa gott samstarf og traust ekki síður en að styðja við nám og leik barnanna. Við Krílakot er starfandi foreldrafélag og foreldraráð. Kosið er í stjórn foreldrafélagsins og foreldraráðið ár hvert og er það gert á foreldrafundi að hausti.