Þróunar og samstarfsverkefni

Í Krílakoti hafa verið unnin hin ýmsu þróunar og samstarfsverkefni. Þessi verkefni hafa skilað sér í öflugu og metnðarfullu skólastarfi þar sem markmiðið er að skapa fjölbreytt starf

Leikskólalæsi 2009-2012

Haustið 2009 hófst þróunarstarf í læsi í skólum Dalvíkurbyggðar. Í leikskólunum köllum við það leikskólalæsi en í grunnskólunum Byrjendalæsi. Kennarar fengu fræðslu og þjálfun hjá þeim Þóru Rósu Geirsdóttur og Jenný Gunnbjörnsdóttur á vegum skólaþróunarsviðs Háskólans á Akureyri.

Markmiðið með verkefninu var að efla færni kennara í kennslu læsis með það að markmiði að efla málþroska barna og tungumálsvitund þeirra. Ekki að kenna börnunum að lesa eftir hefðbundnum leiðum, en þess í stað er verið að leggja góðan grunn fyrir komandi lestrarnám í grunnskóla. Að finna leiðir til að skapa læsisverkefni sem hæfir aldri og þroska barnanna og skapa lestrarhvetjandi umhverfi. Læsi er mjög vítt hugtak, víðara en það að lesa. Við lesum í umhverfið, myndir, svipbrigði, orð sem við sjáum o.s.frv. þeir sem vilja fræðast nánar um verkefnið er bent á síðuna okkar um Leikskólalæsi.

------------------------------

Tónar eiga töframál 2009-2011

Haustið 2009 hófst samstarfsverkefni milli leikskóla Dalvíkurbyggðar og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar. Verkefnið fólst í því að Þuríður Sigurðardóttir (Þura) leikskólakennari fer á milli leikskólanna og er með tónlistarstundir einu sinni í viku fyrir þrjá elstu leikskólaárgangana, en þessi kennsla er hluti af forskólakennslu Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.

Þeir sem vilja fræðast nánar um verkefnið er bent á að skoða síðuna Tónar eiga töframál hér á heimasíðu Krílakots.

------------------------------

Stærðfræðin í leik og starfi leikskólans 2006-2008

Haustið 2006 fór af stað tveggja ára þróunarverkefni í fjórum leikskólum á Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði. Vinnuheiti verkefnisins var Stærðfræðin í leik og starfi leikskólans og var meginmarkmið þess að auka þekkingu og meðvitund leikskólakennara/leiðbeinenda á stærðfræðinni í umhverfi barnanna og í vinnu þeirra í því markmiði að efla og þroska rökhugsun. Verkefnið var síðan gefið út vorið 2008 undir heitinu Stærðfræðin - leikur og lítil börn