Skýjaborg er 18 barna deild. Þar eru yngstu nemendur Krílakots, tæplega eins árs til rúmlega tveggja ára. Dvalartími þeirra er 4 - 8,5 tímar á dag. Áhersla er lögð á umönnun einstaklinganna þar sem starfsfólk er á gólfinu með börnunum sem eiga alltaf greiðan aðgang að aðstoð og faðmlagi. Hópastarf er einu sinni í viku með áherslu á örvun, upplifun og tónlist.

_________________________________________________________________________________________________