Foreldrasamstarf

Foreldrar bera frumábyrgð á uppeldi og velferð barna
sinna en leikskólanum ber að veita foreldrum stuðning í
uppeldi barna. Mikilvægt er að náið samstarf og gagnkvæmt
traust skapist milli heimilis og leikskóla. Foreldrar
þekkja barn sitt best, þeir hafa þekkt það frá fæðingu og
fylgst með þroskaferli þess og líðan. Leikskólakennari
kynnist barni í leikskólastarfi og þekkir þroska þess, færni
og viðbrögð í barnahópi.


Leikskólastjóra ber skylda til, samkvæmt lögum um leikskóla
og reglugerð um starfsemi leikskóla, að stuðla að
samstarfi heimila og leikskóla.


Markmiðið með foreldrasamstarfi er að:

  • Veita foreldrum upplýsingar um starfsemi leikskólans
  • Veita foreldrum upplýsingar um þroska barnsins og stöðu þess í leikskólanum
  • afla upplýsingar um aðstæður og uppeldiviðhorf foreldra
  • stuðla að þátttöku foreldra í starfi leikskólans
  • rækta samvinnu og samskipti leikskólans og heimilanna
  • skapa umræðuvettvang fyrir skoðanaskipti um uppeldi barna

Sjá nánar: aðalnámskrá leikskóla 1999