Hópstjóri: Bryndís

Ása Eyfjörð

Birkir Orri
Björn Emil
Erik Hrafn
Ísar Hjalti
Kolfinna Ósk
Magdalena
Orri Sær
Unnur Elsa

Fréttir í febrúar

Nýja árið í Kátakoti hefur farið vel af stað. Húsin tvö hafa nú fengið nöfn: Sólkot (gamla húsið) og Mánakot (nýja húsið). Yngri árgangurinn heldur til í Mánakoti þar til við förum inn eftir útiveru kl 14, þá fara allir inn í Sólkot í síðdegishressingu. Þetta fyrirkomulag hefur gengið vel. Á morgnanna þegar börnin fara í val geta þau valið að leika sér á svæðum í báðum húsum. Þau sem velja að fara yfir í Sólkot fara í skó og létta yfirhöfn og bíða í fataklefanum eftir að kennari gangi með þeim yfir.

Við þökkum foreldrum, ömmum og öfum fyrir að líta inn til okkar í bónda- og konukaffi. Myndir má sjá í myndaalbúmi heimasíðunnar.

Þann 1. febrúar var send af stað umsókn ásamt greinagerð um að fá Grænfána. Nú er beðið eftir að aðili frá Landvernd komi og geri úttekt á leikskólanum. Börnin eru hvött til þess að fara sparlega með rafmagn, pappír, vatn og sápu. Þau eru dugleg að minna hvort annað og kennarana á að slökkva ljós þegar farið er út úr mannlausu herbergi og að nota 1 handþurrkubréf. Einnig miðlum við fræðslu til þeirra hvað varðar umhverfið okkar, flokkun og endurnýtingu. Þetta blandast inn í söngstundir, listasmiðju, hópastarf og samveru og eru börnin mjög opin fyrir því að spjalla um þessi málefni.

12. - 16. desember 

Vikan hófst á því að börnin fóru á Dalbæ, klædd jólasveinahúfum, til að syngja fyrir íbúana þar. Sungin voru 6 lög: Í skóginum stóð kofi einn, Adam átti syni sjö, Jólasveinar einn og átta, Jólasveinar ganga um jólf, Á jólunum er gleði og gaman (fúmm, fúmm, fúmm) og Ég sá mömmu kyssa jólasvein. Börnin sungu eins og englar, við vorum svo stoltar af þessum lagvissu og öruggu börnum. Það var mikið klappað og beðið um aukalag. Í lok heimsóknarinnar fengum við piparkökur og djús. Fyrst það gekk svona vel að syngja þá gengum við út í kaupfélag, Húsasmiðju og Við höfnina og sungum þar einnig.

5. - 9. desember

Í vikunni vorum við í jólaskapi, líkt og í öðrum vikum í desember. Í hópastarfi voru föndraðar jólakúlur og í listasmiðju var einnig jólaföndur. Dóra Reimars kíkti í heimsókn á þriðjudeginum til að sjá hvernig okkur gengi að læra stærðfræði í gegnum leik. Við fórum í Numicon stærðfræðikubbana og í leikskólalæsi tókum við upp bókina "Glói geimvera og litirnir", flokkuðum hluti eftir litum, töldum þá og rímuðum.

 

Við vorum inni á þriðjudag og miðvikudag vegna mikils frosts. Þá léku börnin sér frjálst eða pússluðu, perluðu og lituðu. Foreldrakaffið í skógarreitnum féll því miður niður en foreldrum býðst að þiggja veitingar að loknu jólaballi næstkomandi fimmtudag hér á Kátakoti.

 

Í Íþróttum var farið í boðhlaup og leiki. Þetta var næstsíðasti tíminn. Næsti tími verður miðvikudaginn 14. desember, þá fara báðir árgangarnir saman í íþróttatíma og þá verður sko stuð!

 

Í tónlistarstund á föstudeginum sungum við yfir jólalögin sem við ætlum að syngja á Dalbæ. Spiluðum á bjöllur og þríhorn og áttum notalega stund við kertaljós.

 

 

14. nóvember - 2. desember

Margt hefur verið að gerast undanfarnar vikur. Börnin lögðu lokahönd á jólagjafir og föndruðu jólaskraut. Bakstursdagurinn gekk vel og piparkökuskreytingadagurinn einnig. Af því má sjá myndir í myndaalbúmi á síðunni.

Íþróttatímarnir á fimmtudögum eru alltaf jafn skemmtilegir. Helena er frábær, hún nær athygli barnanna með því að blikka augunum og er alltaf með skemmtilega blöndu af leikjum og þrautum fyrir þau. 1. desember fórum við í frjálsar: Hástökk og spretthlaup. Börnin stukku yfir 60 cm ;) Síðan voru leikir.

Við viljum þakka foreldrum fyrir mjög góða þátttöku í jólaföndri með börnunum. Ég efast ekki um að allir hafi haft gaman af.

Framundan er desember með sinn dýrðarljóma. Á hverjum mánudegi fram að jólum er kveikt á kertum á aðventukransinum okkar og sungin viðeigandi vísa um hvert kerti, samkvæmt hefð. Jólaball verður haldið með pompi og prakt sem og foreldrakaffi í skógarreit. Vonandi sjá flestir sér fært um að mæta.

7. - 11. nóvember

 

Mikil veðurblíða einkenndi þessa viku og á mánudaginn var ákveðið að fara út að leika. Listasmiðjan féll því miður niður vegna veikinda hjá starfsfólki. Á þriðjudeginum var farið út í leikskólalæsi. Tölurnar 9 og 10 voru skoðaðar og á eftir var farið í gönguferð þar sem krakkarnir spreyttu sig á að finna húsnúmer þar sem tölurnar 1 - 10 kæmu við sögu og kennararnir tóku myndir. Nú er búið að prenta myndirnar út og hengja upp á vegg í leikskólalæsisherberginu okkar í nýja leikskólahúsinu.

 

Í útikennslu á miðvikudag héldum við leit okkar að formunum áfram - nú með þríhyrninga í sigtinu. Krakkarnir fundu marga sniðuga þríhyrninga.

 

 

 

Í íþróttum var stöðvavinna. Boltaköst, grjónapokaköst, dripl og bandý var á stöðvunum. Skemmtilegt og krefjandi. Í lokin var farið í leik með skott !

Í tónlistarstund fórum við í fléttuna líkt og síðast. Æfðum okkur síðan í að syngja og spila veikt og sterkt. Í lokin var hlustað á kattardúettinn góða, sem vekur alltaf jafn mikla lukku.

31. október - 4. nóvember

 

Í hópastarfi á mánudaginn teiknuðum við ferhyrninga og hringi. Í útikennslu í haust fórum við í gönguferð með myndavél til að finna hringi í umhverfinu en áttum eftir að teikna þá. Í útikennslu á miðvikudaginn fórum við því í gönguferð í hríðinni og leituðum uppi ferhyrninga/ferninga til að taka myndir af. Gerðum engla í snjóinn og skemmtum okkur konunglega. Myndir af því koma inn bráðum.

 

Á þriðjudaginn í hópastarfi flokkuðum við kubba í 4 litum, hver litur átti að fara í sitt box. Síðan töldum við þá og bárum saman fjölda gulra og rauðra o.s.frv.Í leikskólalæsi skoðuðum við 4 fyrstu bls. í bókinni okkar "Glói geimvera og tölurnar". Fórum í tölur 1 - 4, settum upp lítil spjöld á vegginn með (2) (mynd af 2 eplum) (epli) o.s.frv. Teiknuðum síðan mynd af 1 sól, 2 eplum, 3 lyklum eða 4 ungum. Í hópastarfi og leikskólalæsi erum við yfirleitt í nýja leikskólahúsinu. Foreldrum er velkomið að koma og kíkja á veggina og sjá hvað við höfum verið að gera. 

 

Í Listasmiðju byrjuðum við á nýju verkefni - við bjuggum til völuskrín! Í völuskrínin á að setja, já, völur sem Þórunn ætlar að útvega okkur.

 

Á fimmtudaginn í íþróttum bjó Helena til þrautabraut sem náði yfir allan salinn. Skemmtilegur tími með ýmsum áskorunum :)

 

Á föstudaginn var dótadagur - glaumur og gleði! Í tónlistartímanum sungum við lag um fléttuna og hvert barn fléttaði sig inn með því að krossleggja hendur og leiða næsta mann. Í lokin leystum við úr fléttunni án þess að sleppa taki á þeim við hliðina. Fórum einnig í leiki með hristur og söng.

 

 

24. - 28. október

Í hópastarfi á mánudaginn fórum við í lottó með formum og litum. Börnin lærðu að þekkja ýmis form. Í lokin sungum við 2 lög.

Í Listasmiðju kláruðum við kindurnar okkar og teiknuðum form.

Á þriðjudag var perlað í fyrri hópastarfstímanum. Notaðar voru litlar perlur og þá reyndi á fínhreyfingarnar. Í seinni tímanum fórum við í leikskólalæsi í fyrsta sinn í vetur. Bókin sem við tökum fyrir heitir "Glói geimvera og tölurnar". Bókin var lesin og síðan teiknuðu börnin mynd af Glóa og Doppu - og skrifuðu stafinn G. Myndirnar hanga á vegg í nýja leikskólahúsnæðinu. Við förum betur í þessa bók á næstu vikum enda margt að skoða í henni.

Í útikennslu á miðvikudag gengum við niður að höfn og skoðuðum heiminn í gegn um "kíki" (klósettrúlluhólka).

Í íþróttum fórum við í stöðvaþjálfun. Helena íþróttakennari setti upp 5 stöðvar og var börnunum skipt niður á þær. Börnin voru á hverri stöð í ákveðinn tíma og síðan skiptu allir á sama tíma um stöð. Margar spennandi þrautir í boði. Í lok tímans var farið í "Út, út, allir mínir fiskar" og 2 litaleiki.

Í tónlistarstund á föstudaginn byrjuðum við á að syngja saman "Góðan dag kæra jörð" með hreyfingum, köstuðum síðan bolta í takt við 2 lög. Við fórum einnig í skemmtilegan leik sem er eins konar útgáfa af "Að fela hlut" nema hvað að í stað þess að börnin segi "heitt og kalt" þegar sá sem leitar nálgast/fjarlægist hlutinn áttu börnin að klappa lágt þegar sá sem leitaði var langt frá hlutnum en klappa hátt þegar hann var nálægt honum. Þetta var krefjandi leikur en gekk betur og betur með hverju skipti. Áður en við fórum úr tímanum hlustuðum við á kisurnar (Duet for two cats) við mikinn fögnuð barnanna.

 

Takk fyrir frábæra viku!

17. - 21. október

Í hópastarfi skoðuðum við Numikon kubba, en þeir eru notaðir til að efla stærðfræðiskilning barna. Börnin höfðu hvert sitt spjald og röðuðu kubbunum á. Þau fylltu út í myndir með þeim sem settar voru á spjaldið.

Í Listasmiðju byrjuðu börnin að búa til kindur í tengslum við burstabæinn. Börnin klipptu út búk og máluðu andlit og fætur.

Á þriðjudeginum fórum við í heimsókn á Krílakot. Þar tókum við þátt í frjálsum leik. Síðan var ávaxtastund og söngur og fengu börnin þá að vera á sínum gömlu deildum. Við enduðum heimsóknina á því að fara með Krílóbörnunum út að leika.

Í útikennslu fórum við í göngutúr. Þar sáum við meðal annars stóran krana í byggingaframkvæmdum og sorpbílinn sem var að tæma sorptunnur bæjarins. Komum við á leikvelli Dalvíkurskóla og lékum okkur þar áður en haldið var heim á ný.

Í íþróttum fóru krakkarnir í ýmsa leiki og skemmtu sér konunglega.

 

 

10. - 14. október

 

Í hópastarfi fórum við út í nýja leikskólahúsnæðið. Þar bjuggum við til listaverk úr þurrkuðum haustlaufum sem við söfnuðum í síðustu viku. Þau voru límd á blöð og má sjá þessi fallegu listaverk hanga í anddyri nýja hússins.

 

Í Listasmiðju var burstabærinn kláraður. Fíflar og sóleyjar komnar á þakið og girðingin þétt svo að búpeningurinn sleppi ekki út

 

 

 

Á þriðjudeginum bjuggum við til græna klaka með perlum og kubbum ofan í. Í samverustund á fimmtudag skoðuðum við síðan klakana okkar og ræddum um það hvernig þeir bráðna og gerðum tilraun með hvort þeir myndu bráðna öðruvísi ef þeir væru saltaðir. Þeir urðu þá hrjúfir viðkomu.

Við fórum líka í leik sem snýst um það að komast að því hvaða hlut maður er með fyrir aftan bak - án þess þó að kíkja á hann. Börnin voru spurð hvernig hluturinn væri viðkomu, harður, mjúkur, kaldur, heitur o.s.frv. Það reyndist sumum erfitt að kíkja ekki en flestum tókst þó að standast freistinguna þegar við fórum í leikinn í annað sinn :) Börnin prófuðu að klappa nafnið sitt (atkvæðin) og í lokin tókum við fram einingakubbana þar sem mörg mannvirki litu dagsins ljís, hús, hundabúr, kökur, bílastæði, á og brú og margt fleira.

Í útikennslu fórum við í göngutúr til að skoða frosið vatn og hlusta á umhverfishljóð. Einnig fórum við í leikinn "Að hlaupa í skarðið".

Íþróttir hófust í þessari viku og gekk allt mjög vel.

3. - 7. október

 

 Við hófum hópastarfstímann á því að tala um gamla daga. Fyrst tókum við fram Vísnabókina og sungum lög við myndir. Fyrst "Krumminn á skjánum", síðan fórum við með vísuna "Hver er uppi á bænum, bænum" og svo lærðum við þjóðlag við "Ljósið kemur langt og mjótt". Síðan var hverju barni gefin mynd af baðstofu og með henni var blað þar sem sjá mátti hluti sem notaðir voru í baðstofum hér áður fyrr. Börnin áttu að finna þessa hluti á baðstofumyndinni sinni og lita þá. Hlutirnir voru kambar, snælda, rokkur, lár og askur. Tilgangur hlutanna var útskýrður. Sum börnin sögðust hafa séð rokk heima hjá sér eða ömmu og vissu alveg til hvers hann væri notaður.

Á þriðjudeginum fór allur 2007 árgangurinn í heimsókn á Krílakot í frjálsan leik, ávaxtastund, söng og útiveru.

Í útikennslu fórum við í gönguferð og söfnuðum haustlaufum sem fallið höfðu af trjánum. Þegar heim var komið var laufunum raðað á gasbleyju/taubleyju og tekin mynd.

September

Í september unnum við með þemað VATN, en til þess að geta fengið Grænfánann þarf leikskólinn að hafa unnið markvisst með eitthvað ákveðið þema. Stefnt er á að sækja um Grænfánann í febrúar 2011. Við hlustuðum meðal annars á sögur um vatnið og fjöruna á heimurinn.is. Tilraunir voru gerðar með vatn, bæði úti og inni. Inni voru hlutir látnir sökkva/fljóta (fyrst var tilgáta sett fram um hvern og einn hlut). Við klipptum einnig út bát/fisk úr kartoni, hann settur í fat með vatni og sápudropi settur á fingurinn. Fingurinn var síðan settur fyrir aftan bátinn og þá skaust báturinn fram. Úti var athugað hvort auðveldara væri að lyfta poka með steinum ofan í vatni eða án vatns og svo var allur leikvöllurinn "málaður" með vatni og pensli. Gönguferðir í góða veðrinu voru margar, m.a. niður í fjöru að tína skeljar, upp að Stórhólstjörn og á aðra leikvelli. Börnin teiknuðu myndir af sér að nota vatn á ýmsan hátt. Í Listasmiðju túlkuðum við hringrás vatnsins sem við höfðum verið frædd um. Fjólublái hópur bjó til sólargeislana, hafið og fiskana, sjá mynd fyrir neðan.

 

12. - 16. desember