Tröllaskagi 2010
Gönguvika Dalvíkurbyggðar
Föstudagur 25. júní til sunnudags 4. júlí.
Sumarið 2010 munu Ferðatröll í samvinnu við Dalvíkurbyggð standa fyrir gönguviku um fjöll og láglendi í sveitarfélaginu eins og undanfarin sumur.
Á hverjum degi eru farnar tvær ferðir, sú fyrri er alltaf kl. 10:00 og er miðuð við göngufólk sem vill takast á við nokkuð krefjandi leiðir og seinni gangan er ýmist kl. 130:0 eða 16:00 og eru á færi flestra og fjölskylduvænar. Tvær undantekningar eru þó frá þessum tímasetningum, þ.e.a.s. miðnætursólargöngurnar tvær, annarsvegar gamli Múlavegur, þá er lagt af stað kl 23:00 og hins vegar ganga á Sólarfjall, en lagt er upp í þá göngu kl. 19:00.
Hægt er að kaupa armbönd sem gilda í allar ferðir og kvöldvöku og veita aðgang í Sundlaug Dalvíkur meðan á gönguvikunni stendur. Að auki fylgir því frábært Undrakrem frá Purity Herbs, göngusokkar frá Fjallakofanum og súpur frá Ekta Réttum.
Mæting er í ferðir samkvæmt auglýstri dagskrá, ekki er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram í ferðirnar. Vinsamlegast mætið tímanlega fyrir brottför ( a.m.k. 15 mín. fyrr ) til þess að ganga frá skráningu ogMæting er í ferðir samkvæmt auglýstri dagskrá, ekki er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram í ferðirnar. Vinsamlegast mætið tímanlega fyrir brottför ( a.m.k. 15 mín. fyrr ) til þess að ganga frá skráningu og greiðslu greiðslu í upphafi ferða. Athugið að aðeins er tekið við reiðufé, ekki verður hægt að greiða með greiðslukortum. greiðslu í upphafi ferða. Athugið að aðeins er tekið við reiðufé, ekki verður hægt að greiða með greiðslukortum.
Verð á armbandi: 15.000,-kr.
Verð í lengri ferðir: 3.000,-kr.
Verð í styttri ferðir: 1.500,-kr.
Miðvikudagur 23. júní:
Jónsmessuhátíð á Tungum, galdrabrenna og óskastund í kvölddögginni.
Föstudagur 25. júní
Kynning á gönguvikunni kl. 12:00 í Menningarhúsinu Bergi þar sem sagt er frá fyrirhuguðum gönguleiðum í máli og myndum.
Laugardagur 26. júní
Gengið kringum Hnjótafjall, brottför kl. 10:00
Lagt upp frá Kotabrúnni. Farið í fótspor Guðmundar góða upp að Stóruvörðu, Heljarganga framhjá fjallinu Deili, horft niður Deildardal og Unadal. Skokkað niður Unadalsjökul niður í Skallárdal að Atlastöðum.
Erfiðleikastig: ![]()
![]()
![]()
Gamli Múlavegur, brottför kl. 23:00
Miðnætursólarganga, Hálfdanarhurð, “hér myndi gengt í fjöllin” og Yoga á Planinu í roða næturinnar.
Erfiðleikastig: ![]()
Sunnudagur 27 júní
Gengið að Steinboga og inn að Gljúfrárjökli, brottför kl. 10:00
Lagt er upp frá Kóngstöðum. Bergsúla, einstök náttúrusmíð. Sögur af hálftröllum og heiðnum mönnum. Svölun við jökulsporð.
Erfiðleikastig: ![]()
![]()
![]()
Eyðibýlaganga, brottför kl. 13:00
Haldið frá Kóngsstöðum að eyðibýlunum hljóðu í botni Skíðadals, mannlíf liðinna alda rifjað upp. Hugað að náttúrufari, örnefnum og huldum vættum.
Erfiðleikastig: ![]()
Kvöldvaka í Stekkjarhúsi kl. 18:00 að hætti gangnamanna, boðið verður uppá kraftmikla gúllassúpu og eldhitað brauð.
Mánudagur 28. júní
Reykjaheiði, brottför kl. 10:00
Ekið frá Sundlaug Dalvíkur að Reykjum í Ólafsfirði. Gengin er gamla póstleiðin milli Svarfaðardals og Ólafsfjarðar. Fallega vörðuð leið. Hér lét Davíð sig dreyma um dalakofann.
Erfiðleikastig: ![]()
![]()
Melrakkadalur Álfaganga, brottför kl. 16:00
Lagt upp frá bílastæðinu við Dalvíkurkirkju. Brimnesá í fögru gljúfri. Framhlaupið Upsi og Melrakkadalur. Hulduheimar og huldusögur sem tengjast staðnum.
Hóparnir tveir sameinast við Sundlaug Dalvíkur og fara saman í sund.
Erfiðleikastig:![]()
Þriðjudagur 29. júní
Farið á Kerlingu, brottför kl. 10:00
Lagt er upp frá Melum í Svarfaðardal. Stóllinn, Kerlingin, drottning svarfdælskra fjalla.
Útsýni yfir byggð og bú. Nöfn rituð í gestabók. Geldingadalur og Hamrahnjúkur.
Erfiðleikastig: ![]()
![]()
![]()
![]()
Hillur Árskógsströnd, brottför kl. 16:00
Upphaf göngunnar er frá hæðinni milli Fagraskógar og Rauðavíkur eða á hreppamörkum Hörgárbyggðar og Dalvíkurbyggðar. Gengið upp á Hillurnar þar sem kallast Vatnamýrar. Af Gráhjallahaus er gott útsýni. Kötluhóll er meintur fornmannahaugur. Hrærekshól er friðaður, enda segir sagan að þar hvíli norski fylkiskonungurinn, Hrærekur blindi.
Erfiðleikastig: ![]()
Miðvikudagur 30. júlí
Farið á Hestinn, brottför kl. 10:00
Gengið er frá Klængshóli í Skíðadal. Komið við á Skipum og hlustað eftir útburðarvæli og steinrunnin tröllin í Strákahnjúknum barin augum. Útsýn af Hesti er stórkostlegt yfir Skíðadal og hengidalina allt um kring.
Erfiðleikastig: ![]()
![]()
![]()
![]()
Urðabjörg, brottför kl. 16:00
Farið frá Skröflustöðum (eyðibýli milli Hreiðastaðakots og Urða). Tvö mjög skýr og fallega löguð berghlaup, sem jaðra saman. Ytri-og Syðri-Björg. Berggangar og Skálarhólar.
Erfiðleikastig: ![]()
Fimmtudagur 1. júlí
Gengið á Hvarfshnjúk, brottför kl. 10:00
Farið upp frá bænum Hofsá í Svarfaðardal. Hofsáin, Goðafoss og Skriðukotsvatn, eggjaganga. Af Hvarfshnjúk er einstakt útsýni inn til botna Svarfaðardals og Skíðadals og út yfir alla sveit og Dalvík, út Eyjafjörð og allt til Grímseyjar.
Erfiðleikastig: ![]()
![]()
![]()
Sagnaganga um Sauðanes, brottför kl. 13:00
Haldið af stað frá Sauðárkoti í Ólafsfjarðarmúla. Jökulruðningur, Rípillinn er merkilegt náttúrufyrirbrigði frá ísaldartímanum. Flesjarhorn, ”Sunnan og vestan sendi vind”. Þjóðsögur og munnmæli. Sagt er að Karl inn rauði sé heygður í Bikhól.
Erfiðleikastig: ![]()
Föstudagur 2. júlí
Gengið á Múlakollu, brottför kl. 10:00
Gangan hefst við Brimnesá skammt norðan Ólafsfjarðarbæjar. Útvörður Dalvíkurbyggðar í norðri. Af Múlakollu er útsýni stórkostlegt og liggja Ólafsfjörður og Eyjafjörður fyrir fótum manns á hvora hönd.
Erfiðleikastig: ![]()
![]()
Strandganga á Árskógsströnd, brottför kl. 16:00
Upphaf gönguferðar er frá hlaðinu á Hellu á Árskógsströnd og gönguleiðin er um Helluhöfða. Eyðikotið Lykkja og tættur fornbýlisins Stóra-Háls. Þar er eini þekkti vaxtarstaður davíðslykis hér á landi. Við Helluhöfðann er Naustavík en þar voru sjóbúðir, beituhús og aðrar byggingar sem tengjast sjósókn.
Erfiðleikastig: ![]()
Laugardagur 3. júlí
Þorvaldsdalsganga / hlaup
Leiðsögumaður: Bjarni Guðleifsson
Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi. Hlaupið hefst við Fornhaga í Hörgárdal og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd. Göngufólk og hlauparar sem reikna með að vera lengur en 4 tíma á leiðinni leggja af stað kl. 900 meðan hlaupið sjálft hefst kl. 1200. Vegalengd hlaupsins er um 25 kílómetrar.
Skráningargjald í hlaupið er 2.500 kr, en 3.000 kr ef skráð er á staðnum.
Forskráning fer fram á netinu á hlaup.is en einnig er hægt að hafa samband við skipuleggjendur á umse@bugardur.is varðandi greiðslu þátttökugjalda. Skráningu og greiðslu þátttökugjalda lýkur kl. 2000 þann 2. júlí.
Farið upp í Garnir og upp á Sólarfjall, brottför kl. 19:00
Miðnæturganga frá hitaveitutönkum á Hámundastaðahálsi og staðið á Sólarfjalli á miðnætti. Gengið um Garnir, myndaðar af jaðarvatni ísaldarjöklanna. Þægileg ganga upp eggina og á toppinn í sól úr sjó.
Erfiðleikastig: ![]()
![]()
![]()
Sunnudagur 4. júlí
Friðland Svarfdæla, fuglaskoðun og sögur úr fortíð, brottför kl. 10:00
Farið frá skiltaútskoti skammt sunnan Ásgarðs. Hrísahöfði, Hrísatjörn, fuglaskoðun, fuglahús og fiskisúpa. Vígsla á göngubrú, fuglaskoðunarhúsi og plöntu- og fuglaskiltum.
Erfiðleikastig: ![]()
Styrktaraðilar "Tröllaskagi 2010 - gönguvika í Dalvíkurbyggð" eru:

Dalvíkurbyggð






