Bæjarráð(629); 14.06.2012
14.06.2012Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 629. fundur
haldinn fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, fimmtudaginn 14. júní 2012
og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu:
Kristján Hjartarson, Jóhann Ólafsson, Marinó Þorsteinsson, Svanfríður Inga Jónasdóttir, Guðrún Pálína Jóhannsdóttir.
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Björn Snorrason, áheyrnarfulltrúi, boðaði forföll, sem og varamaður hans.
Dagskrá:
1. 201206003 - Frá Ungmennafélagi Svarfdæla; Bráðabirgðaendurbætur á æfingasvæði á Dalvíkurvelli.
Undir þessum lið komu á fund bæjarráðs Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, og Björn Friðþjófsson, fulltrúi Ungmennafélags Svarfdæla.
Á 628. fundi þann 7. júní 2012 var eftirfarandi bókað:
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Árni Jónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
Tekið fyrir erindi frá Ungmennafélagi Svarfdæla, dagsett þann 4. júní 2012, þar sem fram kemur að æfingasvæðið á Dalvíkurvelli er næstum ónothæft og nauðsynlegt sé að fara í framkvæmdir við svæðið strax til að koma því í nothæft stand. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á kr. 2.965.000 og þar af er vinna félagsmanna við jöfnun undir þökur og útlagning á þökum metin kr. 1.650.000.
UMFS óskar eftir við bæjarráð Dalvíkurbyggðar að sveitarfélagið leggi til útlagðan kostnað eða styrk að upphæð kr. 1.315.000.
Árni vék af fundi.
Bæjarráð frestar afgreiðslu og felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að kalla eftir upplýsingum frá UMFS er varðar m.a. afstöðu félagsins til hugmynda að deiliskipulagi íþróttasvæðisins og framtíðarsýn félagsins fyrir svæðið.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi svör frá UMFS við þeim atriðum sem bæjarráð óskað eftir að fá svör og/eða skýringar við.
Til umfjöllunar ofangreint.
Björn vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir viðauka að upphæð kr. 1.000.000 vegna styrks til UMFS vegna ofangreinds erindis, vísað á deild 06-81.
2. 201205001 - Frá Skíðafélagi Dalvíkur; Fjárhagur Skíðafélagsins.
Á 627. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 24. maí 2012 var eftirfarandi bókað:
Tekið fyrir erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur, bréf dagsett þann 17. maí 2012, þar sem fram kemur að Skíðafélag Dalvíkur óskar eftir viðræðum við Dalvíkurbyggð vegna skuldastöðu félagsins sem er orðin félaginu ofviða.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa fund með forsvarsmönnum Skíðafélags Dalvíkur í samráði við íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs og að undirbúningur sé í samræmi við umræður á fundinum.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu viðbótargögn og upplýsingar:
Ársreikningur Skíðafélags Dalvíkur 2011 ásamt ársskýrslu.
Bréf frá Skíðafélagi Dalvíkur, dagsett þann 4. júní 2012, ásamt fylgigögnum, með svörum félagsins samkvæmt beiðni bæjarráðs um frekari skýringar á ákveðnum liðum auk útskýringa á tveimur liðum úr ársreikningum fyrir árið 2011.
Til umfjöllunar ofangreint.
Hildur Ösp og Árni véku af fundi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa næstu skref í samræmi við umræður á fundinum.
3. 201205069 - Deiliskipulag í landi Upsa; minnisblað frá fundi með ábyrgðarmönnum undirskriftasöfnunar.
Á 627. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 24. maí 2012 var m.a. eftirfarandi bókað:
Lagður fram undirskriftarlisti sem barst sveitarfélaginu þar sem fram kemur eftirfarandi texti:
Við undirrituð skorum á bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar að falla frá fyrirhuguðum framkvæmdum vegna frístundabyggðar í landi Upsa. Til vara krefjumst við þess að íbúum sveitarfélagsins verði gefinn kostur á að kjósa um málið eigi síðar en 30. júní 2012.
Ekki fylgdi með ofangreindum undirskriftarlista hver / hverjir eru ábyrgðarmenn undirskriftarlistans.
Á kjörskrá Dalvíkurbyggðar eru 1.396 samkvæmt Íbúasýn þann 18.05.2012. 334 skrifa undir listann, þá er búið að strika út 5 nöfn sem ekki voru gild. Þetta er því 23,93% kosningabærra íbúa í Dalvíkurbyggð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að nálgast upplýsingar um hver / hverjir eru ábyrgðarmenn undirskriftarlistans og óska eftir fundi með þeim til þess að ræða ofangreint.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi minnisblað bæjarstjóra, dagsett þann 7. júní 2012, er varðar fund bæjarstjóra og sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs með Guðmundi Pálssyni, Helga Indriðasyni og Óla Þór Jóhannssyni.
Niðurstaða fundarins var að gagnlegt væri að halda íbúafund þar sem reynt yrði að átta sig á því hvernig vilji ibúanna yrði best kallaður fram. Ef til kosningar kæmi væri unnt að halda þær um leið og kosningar um efni stjórnarskrár sem verða í haust.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda tillögu um íbúafund og stefnt verði að fundi þann 2. júlí n.k.
4. 201206026 - Frá Eignasjóði og Húsabakka ehf; Viðhald og framkvæmdir á Húsabakka.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir beiðni frá Húsabakka ehf. en félagið óskar eftir að sveitarfélagið kosti frágang á búri og forstofu að innan. Rífa þurfti innan úr búri vegna rakaskemmda og það sama þarf að gera við forstofu, hluti þessara rýma var klætt innan með asbesti.
Samkvæmt samantekt umsjónarmanns fasteigna, dagsett þann 11. júní 2012, þá er kostnaður við að klæða þessi rými að innan áætlaður;
Búr Kr. 655.000,- Forstofa Kr. 180.000,-
Samtals. Kr. 835.000,-
Bæjarráð samþykkir viðauka að upphæð kr. 400.000, vísað á málaflokk 31, þar sem bregðast þarf við leka til þess að verja húsið.
5. 201205078 - Húsnæði Leikbæjar vegna breytinga í skólastarfi í Árskógi.
Á 627. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 24. maí 2012 var eftirfarandi bókað:
Til umræðu framtíðarnýting húsnæðis Leikbæjar þar sem fyrir liggur að frá og með 1. ágúst n.k. verður starfsemi leikskólans komin í endurbætt húsnæði Árskógarskóla.
Bæjarráð leggur til að húsnæðið Leikbær verði leigt út sem íbúðarhúsnæði frá og með 1. ágúst 2012.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fyrirspurn sem fram hefur komið varðandi þann möguleika að kaupa húseignina.
Bæjarráð leggur til að húsnæði Leikbæjar verði auglýst til sölu þar sem fyrir liggur að eftirspurn er eftir húsnæðinu.
6. 201205091 - Frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Fjallgirðingar 2012.
Undir þessum lið kom á fund bæjarráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs.
Á 74. fundi landbúnaðarráðs þann 30. maí 2012 var eftirfarandi bókað:
Viðhald á fjallgirðingum hefur verið vaxandi vandamál og er nú þannig komið að nauðsynlegt er að bregðast við þeirri viðhaldsþörf sem kominn er upp.
Formanni og sviðsstjóra er falið að kanna kostnað vegna viðhalds á girðingum sveitarfélagins.
Sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs gerði grein fyrir ofangreindu og óskar eftir aukafjárveitingu að upphæð kr. 500.000 en samkvæmt fjárhagsáætlun 2012 er gert ráð fyrir kr. 1.670.000 vegna viðhalds á girðingum.
Þorsteinn vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir viðauka að upphæð kr. 500.000, vísað á deild 13-21.
7. 201204011 - Frá innanríkisráðuneytinu; reglugerð um fjármálareglur sveitarfélaga.
Á 623. fundi bæjarráðs þann 12. apríl 2012 var eftirfarandi bókað:
Samkvæmt rafpósti frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 2. apríl 2012, var vakin athygli á frétt á kynningu á drögum um reglugerð um fjármálareglur sveitarfélaga sem eru til umsagnar.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Umsagnarfrestur um drögin er til 23. apríl n.k.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að móta umsögn Dalvíkurbyggðar.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdi reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga sem tekur gildi þann 15. júní n.k.
Lagt fram til kynningar.
8. 201204042 - Fjárhagsáætlun 2013- (2016).
Bæjarstjóri og sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs lögðu fram og kynntu tillögu að fjárhagsramma Dalvíkurbyggðar 2013.
Bæjarráð samþykkir tillöguna eins og hún liggur fyrir og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.











