Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Bæjarstjórn(235); 17.04.2012

18.04.2012

Bæjarstjórn - 235. fundur
haldinn fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, þriðjudaginn 17. apríl 2012
og hófst hann kl. 16:15


Fundinn sátu:
Guðmundur St. Jónsson, Kristján Hjartarson, Björn Snorrason, Svanfríður Inga Jónasdóttir, Marinó Þorsteinsson, Anna Guðný Karlsdóttir, Þórhalla Karlsdóttir, Guðrún Pálína Jóhannsdóttir.

Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Dagskrá:

1. 1203004F - Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 622

1.1. 201203048 - Samgöngumál, skýrsla Vegagerðarinnar um úrbætur í Ólafsfjarðarmúla.
1.2. 201203049 - Almenningssamgöngur í Eyjafirði/skólaakstur Dalvík - Ólafsfjörður
1.3. 201203050 - Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar og samvinna á þeim vettvangi.
1.4. 201203051 - Sameiginlegur fundur bæjarráða Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar-Önnur mál
Enginn tók til máls og ekkert þarfnast afgreiðslu.


2. 1204002F - Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 623
2.1. 201203140 - Frá fræðslu- og menningarsviði; Málefni Íþróttamiðstöðvar 2012.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs um aukafjárveitingu að upphæð kr. 2.157.609, vísað á deild 06-50.

2.2. 201202112 - Trúnaðarmál
2.3. 201203047 - Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2011.
2.4. 201202039 - Bæjarlögmaður fyrir Dalvíkurbyggð.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs um að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við lögmannsstofuna LEX.

2.5. 201203046 - Siðareglur Dalvíkurbyggðar-drög.
2.6. 201204011 - Frá Innanríkisráðuneytinu:Fjármálareglur; drög að reglugerð um fjármálareglur sveitarfélaga.
2.7. 201204009 - Frá nefndasviði Alþingis; Mál 657. frá atvinnuveganefnd. Frumvarp til laga um fiskveiðistjórnun til umsagnar.
Til máls tók:
Svanfríður Inga Jónasdóttir, sem leggur fram tillögu um eftirfarandi ályktun bæjarstjórnar:
Fyrir Alþingi liggja nú frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og um veiðigjöld. Því er haldið fram að nái frumvörpin fram að ganga geti það haft mjög neikvæðar afleiðingar fyrir afkomu útgerðarfyrirtækja og þar með stöðu einstakra sveitarfélaga og íbúa þeirra. Mikilvægt er þess vegna að fara vandlega yfir áhrif frumvarpanna áður en þau verða lögfest.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að Alþingi skoði vel og ígrundi þær úttektir sem fyrir liggja á mögulegum áhrifum frumvarpanna með trausta atvinnu og byggð í landinu að leiðarljósi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs um að óska eftir greinargerð frá KPMG.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ofangreinda ályktun.


2.8. 201204010 - Frá nefndasviði Alþingis; Mál 658. Frumvarp til laga um veiðigjöld til umsagnar.
2.9. 201204013 - Frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar; Fundur með framkvæmdastjóra AFE.
2.10. 201204012 - Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Ný þingmál sem varða sveitarfélögin.
2.11. 201204008 - Frá Bændasamtökum Íslands; Ályktun búnaðarþings.
2.12. 201204014 - Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga; Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
2.13. 201204002 - Frá Tækifæri hf; Aðalfundur Tækifæris 2012.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.

2.14. 201112006 - Frá eigendum Ráðhúss Dalvíkur; Eining-Iðja, Sparisjóður Svarfdæla, Salka-Fiskmiðlun.
Til máls tók:
Svanfríður Inga Jónasdóttir.

2.15. 201204018 - Frá umhverfis- og tæknisviði;Árskógarskóli, framkvæmdir 2012.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs um að gengið verði til samninga við Tréverk á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.

2.16. 201203106 - Klapparstígur 5; kauptilboð.
Til máls tók:
Svanfríður Inga Jónasdóttir, sem upplýsti að gagntilboð frá Dalvíkurbyggð, dagsett þann 13. apríl 2012, að upphæð kr. 11.700.000 hefur verið samþykkt skriflega af leigjanda/forkaupsréttarhafa.
Svanfríður Inga leggur til að bæjarstjórn veiti bæjarráðs fullnaðarumboð til þess að afgreiða málið.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ofangreinda tillögu Svanfríðar Ingu.

2.17. 201203147 - Frá Sýslumanninum á Akureyri:Brekkusel - beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.

2.18. 201203088 - Frá Sýslumanninum á Akureyri; Húsabakki ehf. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.

2.19. 201203002 - Frá Sýslumanninum á Akureyri; Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstarleyfi - Sportferðir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.

2.20. 201204015 - Frá Sýslumanninum á Akureyri; Samstarfssamningur um rekstur Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar sem staðfest hefur verið af innanríkisráðherra.
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.


3. 1203007F - Landbúnaðarráð - 73
3.1. 201202026 - Samþykkt um búfjárhald, endurskoðun 2012
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu landbúnaðarráðs um að vísa samþykkt um búfjárhald til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis til staðfestingar.

3.2. 201202028 - Breyting á samþykkt um Hunda- og kattahald
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu landbúnaðarráðs um að vísa samþykkt um hunda- og kattahald til umhverfisráðuneytis til staðfestingar.

Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.


4. 1204001F - Menningarráð - 30
4.1. 201202112 - Ráðning á safnstjóra á bóka- og héraðsskjalasafns
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu menningarráðs um ráðningu á Laufey Eiríksdóttur, bókasafns- og upplýsingafræðingi, í starf forstöðumanns bóka- og héraðasskjalasafns.

4.2. 201202001 - Styrkumsóknir í Menningar- og viðurkenningasjóð 2012
Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.


5. 1203006F - Umhverfisráð - 224
5.1. 201203086
- Umferðarmál í Dalvíkurbyggð
Bæjarstjórnarfulltrúar kynntu sér teikningar er varða fundargerðir umhverfisráðs.

5.2. 201203021 - Endurskoðun á styrktarsamningi við Björgunarsveitin Dalvík sem gildir fyrir árin 2009 - 2012.
5.3. 201203083 - Umsókn um breytingar innanhúss í syðra-húsi að Húsabakka, Svarfaðardal.
Til máls tók:
Kristján E. Hjartarson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu umhverfisráðs með 6 atkvæðum, Kristján E. Hjartarson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

5.4. 201203087 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir geymslu að Víkurbakka, Árskógsströnd.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu umhverfisráðs samhljóða.

5.5. 201203088 - Húsabakki ehf. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi að Húsabakka, Svarfaðardal.
5.6. 201203002 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstarleyfi - Sportferðir að Ytri-Vík, Árskógsströnd.
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.

5.7. 201111043 -

6. 1203010F - Umhverfisráð - 225
6.1. 201111043 - Umsókn um lækkun byggingaraleyfisgjalda
6.2. 201203145 - Ósk um malartöku á eyrum Skíðadalsár
Til máls tók:
Kristján E. Hjartarson.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu umhverfisráðs samhljóða.

6.3. 201110056 - Skipulag íþróttasvæðis
6.4. 201203147 - Brekkusel - beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi
6.5. 201203148 - Lagning raflínu í jörð
6.6. 201203085 - Hafnarbraut 7, 230-5327. Álagning fasteignagjalda
6.7. 201204005 - Götulýsing Dalvíkur
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.


7. 201203047 - Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2011. Fyrri umræða.
Til máls tók:
Svanfríður Inga Jónasdóttir, bæjarstjóri, sem kynnti helstu niðurstöður ársreiknings Dalvíkurbyggðar 2011.

Rekstrarniðurstaða Dalvíkurbyggðar samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var jákvæð um kr. 38.802.000 á árinu 2011 og rekstrarniðurstaða A hluta (sveitarsjóður) var jákvæð um kr. 29.873.000.
Rekstrartekjur á árinu 2011 námu kr. 1.506.564.000 samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta. Rekstrartekjur A hluta námu kr. 1.231.420.000.

A og B hluti skiluðu samtals kr. 231.826.000 í veltufé frá rekstri.

Niðurstaða Eignasjóðs var neikvæð um kr. 27.260.835 og munar þar mestu um aukin fjármagnsgjöld vegna aukinnar verðbólgu. Sama á við um Félagslegar íbúðir sem voru með neikvæða niðurstöðu um kr. 14.739.003. Önnur B hluta fyrirtæki voru með jákvæða rekstrarniðurstöðu á árinu 2011.

Eigið fé sveitarfélagsins, A og B hluta, í árslok 2011 nam kr. 1.933.280.000 samkvæmt efnahagsreikningi og eiginfjárhlutfall var 54,2%.

Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum varð um kr. 161.505.000. Það voru einkum framkvæmdir við skólahúsnæði. Engin lán voru tekin á árinu en eldri lán greidd niður um kr. 101.892.000.

Skuldahlutfall Dalvíkurbyggðar, A og B hluta, er 108,6 en samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum á það að vera undir 150.

Laun og launatengd gjöld á árinu 2011 námu alls 49,1% af heildartekjum á móti 47% á árinu 2010, en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu nam 111 stöðugildum í A hluta en alls 118 stöðugildum sem er fækkun um einn frá fyrra ári.


Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2011 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

8. 1203005F - Bæjarstjórn - 234
Til upplýsingar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:02


Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Sumarstörf

Viðburðadagatal

« maí 2013 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31