Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Félagsmálaráð(156); 21.02.2012

17.04.2012

Félagsmálaráð - 156. fundur
haldinn fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, þriðjudaginn 21. febrúar 2012
og hófst hann kl. 08:00


Fundinn sátu:
Heiða Hilmarsdóttir, Marinó Þorsteinsson, Rósa Ragúels, Valdís Guðbrandsdóttir, Hildur Birna Jónsdóttir, Eyrún Rafnsdóttir, Þórhalla Karlsdóttir.

Fundargerð ritaði:
Eyrún Rafnsdóttir, Félagsmálastjóri

Dagskrá:

1. 201202087 - Kynning frá 9.bekk Dalvíkurskóla
9. bekkur Grunnskóla Dalvíkurbyggðar kom á fund félagsmálaráðs og kynnti fyrir nefndarmönnum verkefni um einelti og fordóma sem þau unnu í samfélagsfræði undir stjórn umsjónarkennara síns, Arnars Símonarsonar.
Félagsmálaráð lýsir ánægju með verkefnið og hvetur krakkana til að kynna það víðar í samfélaginu okkar. Þakkar börnunum kærlega fyrir innlegg sitt í mikilvægt forvarnarstarf í sveitarfélaginu.

2. 201202089 - Trúnaðarmál
Félagsmálastjóri kynnti afgreiðslur fjárhagsaðstoðar og önnur trúnaðarmál


3. 201202088 - Umsókn um að gerast dagmóðir
Umsókn hefur borist frá Sólveigu Halldórsdóttur um að gerast dagmóðir.
Félagsmálaráð veitir dagmóðurleyfi til eins árs að því gefnu að öll skilyrði séu uppfyllt

4. 201202081 - Mannréttindastefna
Formaður félagsmálaráðs leggur til að Mannréttindastefna sveitarfélagsins verði endurskoðuð þar sem nokkur ár eru síðan hún var gerð.
Frestað til næsta fundar

5. 201112041 - Fjölmenningarstefna skóla
Fræðsluráð Dalvíkurbyggðar vísar Fjölmenningarstefnu í Grunnskólanum til umsagnar félagsmálaráðs.
Formanni félagsmálaráðs og starfsmönnum félagsþjónustu er falið að gera umsögn samanber umræður á fundi og leggja fyrir ráðið á næsta fundi.

6. 201202072 - Beiðni um samvinnu við Útlendingastofnun
Lagt var fram til kynningar bréf frá Útlendingastofnun þar sem óskað er samvinnu vegna þeirra erlendu ríkisborgara sem eru hér utan þjóðskrár og þurfa á aðstoð að halda.
Lagt fram til kynningar

7. 201201038 - Beiðni um fjárstuðning við forvarnarstarf SAMAN-hópsins 2012
Styrkbeiðni barst frá SAMAN-hópnum. SAMAN hópurinn er samstarfsvettvangur frjálsra félagasamtaka, stofnana og sveitarfélaga sem láta sig varðar forvarnir og velferð barna. Leiðarljós í starfi hópsins eru niðurstöður rannsókna sem sýna mikilvægi og áhrifamátt foreldra í forvörnum.
Félagsmálaráð hafnar erindinu en mun áfram kaupa segla með útivistartímanum af SAMAN-hópnum og felur félagsmálastjóra að ganga frá því.

8. 201202009 - 440. mál til umsagnar.
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögur til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2012, 440. mál
Félagsmálaráð gerir ekki athugasemdir við framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks en fagnar því að slík áætlun sé í vinnslu.

9. 201202080 - Mál til umsagnar frá Velferðarráðuneyti
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögur til þingsályktunar um faglega úttekt á réttargeðdeildinni á Sogni, 319. mál sem og frumvarp til laga um barnalög (réttindi barns, forsjá, umgengni o.fl) 290 mál.
Félagsmálaráð gerir ekki athugasemdir við þingsályktunartillögu um úttekt á réttargeðdeild á Sogni né frumvarp til laga um barnalög.

10. 201112049 - Styrkveitingar; almennar reglur Dalvíkurbyggðar
Formaður félagsmálaráðs fór yfir reglur um styrkveitingar i Dalvíkurbyggð.
Félagsmálaráð gerir ekki athugasemdir við reglurnar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15

Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Sumarstörf

Viðburðadagatal

« maí 2013 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31