Félagsmálaráð(136)10.03.2010
11.03.2010Félagsmálaráð
136. fundur
37. fundur félagsmálaráðs 2006-2010.
Félagsmálaráð kom saman til fundar miðvikudaginn 10. mars 2010 klukkan 16:00 í Ráðhúsinu á Dalvík. Mættir voru undirritaðir og sátu fundinn ásamt félagsmálastjóra.
Fyrir var tekið:
1) Umræða um dagskrá:
a) Fundargerð síðasta fundar nr. 135 lögð fram, engin athugasemd gerð við hana.
2) Trúnaðarmál:
Kynntar afgreiðslur á fjárhagsaðstoð, bókað í trúnaðarmálabók.
3) Aðsend erindi:
a) Félagsmálastjóri lagði fram bæklinga frá Jafnréttisstofu um lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Einnig bæklinginn „Jöfnum leikinn“.
b) Lagt var fram bréf frá Rannsóknarstofnun í Barna- og fjölskylduvernd en þar eru kynntar málstofur fyrir árið 2010.
c) Félagsmálastjóri lagði fram bréf frá Saman hópnum þar sem óskað er eftir fjárstuðningi sveitarfélagsins við forvarnastarf Saman hópsins á árinu 2010. Félagsmálaráð samþykkir að styrkja Saman hópinn um 15.000 af lið 02-80-9110 . En vill koma á framfæri til hópsins að bæta inn forvarnarauglýsingu vegna bæjarhátíða t.d vegna Fiskidagsins mikla, Írskra daga, Danskra daga o.s.frv. en ekki einbeita sér eingöngu að verslunarmannahelginni og menningarnótt.
4) Fjárhagsáætlun :
Félagsmálastjóri kynnti frávikagreiningu vegna fjárhagsáætlunar árið 2009. Engar athugasemdir gerðar við hana.
5) Dagforeldrar:
Tvær umsóknir um leyfi til gæslu barna í heimahúsum bárust ráðinu. Önnur er frá Hirti Sólrúnarsyni, hin umsóknin er frá Guðrúnu Sigurðardóttur en hún hefur verið með leyfi frá félagsmálaráði en það var útrunnið. Félagsmálaráð samþykkir umsóknirnar til eins árs með fyrirvara um að umsækjendur skili inn gögnum sbr. 13. grein reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907
6) Yfirfærsla þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga:
Félagsmálastjóri og formaður félagsmálaráðs kynntu starfshóp sem myndaður hefur verið frá síðasta fundi félagsmálaráðs til að fjalla um yfirflutning málefna fatlðara. Í starfshópnum sitja bæjarstjóri, félagsmálastjóri og formaður félagsmálaráðs. Bæjarstjóri, félagsmálastjóri sem og formaður félagsmálaráðs sóttu ráðstefnu á vegum sambands íslenska sveitastjórna í Reykjavík á dögunum þar sem fyrirhugaður flutningur var kynntur. Fyrrnefndur hópur fór einnig til fundar við bæjarstjóra og félagsmálastjóra Fjallabyggðar til að fá frekari kynningu á Byggðasamlagi Norðurlands vestra í málefnum fatlaðra.
Næsti fundur ráðsins verður mánudaginn 12. apríl 2010 kl. 16:00
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:00
Fundargerð ritaði Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri
Valdís Guðbrandsdóttir Jóhannes Hafsteinsson
Marinó Þorsteinsson Rósa Ragúels
Heiða Hilmarsdóttir

Dalvíkurbyggð






