Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

Félasmálaráð(134); 14.12.2009

22.12.2009

Félagsmálaráð
134. fundur
35. fundur félagsmálaráðs 2006-2010.

Félagsmálaráð kom saman til fundar mánudaginn 14. desember 2009 klukkan 17:00 í Ráðhúsinu á Dalvík. Mættir voru undirritaðir og sátu fundinn ásamt félagsmálastjóra. Gestur á fundinum var Lilja Björk Ólafsdóttir undir lið 5, Vímuvarnaráætlun. Heiða Hilmarsdóttir boðaði forföll en ekki náðist í varamann hennar.

Fyrir var tekið:

1) Umræða um dagskrá:
a) Fundargerð síðasta fundar nr. 133 lögð fram, engin athugasemd gerð við hana.

2) Trúnaðarmál:
Kynntar afgreiðslur á fjárhagsaðstoð, bókað í trúnaðarmálabók.

3) Aðsend erindi:
a) Félagsmálastjóri lagði fram bréf og könnun frá Félags- og Tryggingamálaráðuneytinu frá 6. nóvember um rannsókn á ofbeldi gegn konum.
b) Félagsmálastjóri lagði fram ársskýrslu Öryrkjabandalagsins en það barst 30. október sl. Skýrsluna má einnig finna á vefslóðinni http://www.obi.is/um-obi/arsskyrslur
c) Lagður var fram tölvupóstur frá 2. desember frá Garðari Björgvinssyni framkvæmdastjóra Fjármálaþjónustunnar ehf.
d) Lagt var fram bréf frá Jafnréttisráði frá 17. nóvember sl. um samþættingu fjölskyldu og atvinnulífs en ákveðið hefur verið að þema ársins 2010 verði „Samþætting fjölskyldu- og atvinnulífs“. Óskað var eftir viðbrögðum við erindinu og var félagsmálastjóra falið að svara því.
e) Lagt var fram bréf frá Jafnréttisráði frá 2.desember 2009 um afhendingu jafnréttisáætlunar ásamt framkvæmdaráætlun. Félagsmálastjóra falið að svara bréfinu.
f) Félagsmálastjóri lagði fram upplýsingar frá Félags- og Tryggingarmála-ráðuneytinu um verkskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga vegna yfirflutnings málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Félagsmálaráð frestar málinu til næsta fundar ráðsins.

4) Endurskoðun á reglum:
a) Félagsmálastjóri lagði fram tillögur að gjaldskrá fyrir heimilisþjónustu Dalvíkurbyggðar. Félagsmálaráð samþykkir gjaldskrána.
b) Félagsmálaráð ákvað að hækka framfærslukvarða fjárhagsaðstoðar samkvæmt vísitölu um áramótin.
c) Félagsmálaráð samþykkir breyttar reglur um liðveislu í Dalvíkurbyggð.
d) Reglur um ferðaþjónustu, frestað til næsta fundar.


5) Vímuvarnaráætlun:
Lilja Björk Ólafsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið til að kynna verkefni er hún vann í Forvarnarskóla Íslands, um foreldrakvöld.


Næsti fundur ráðsins verður 18. janúar 2010

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:00


Fundargerð ritaði Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri


Valdís Guðbrandsdóttir
Jóhannes Hafsteinsson
Marinó Þorsteinsson
Rósa Ragúels

Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Vetrarævintýri í Dalvíkurbyggð
  • Sorphirða
  • Nágrannavarsla

Viðburðadagatal

« mars 2010 »
m þ m f f l s
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31