Félagsmálaráð(133); 09.11.2009
21.12.2009Félagsmálaráð
133. fundur
34. fundur félagsmálaráðs 2006-2010.
Félagsmálaráð kom saman til fundar mánudaginn 9. nóvember 2009 klukkan 16:00 í Ráðhúsinu á Dalvík. Mættir voru undirritaðir og sátu fundinn ásamt félagsmálastjóra.
Fyrir var tekið:
1) Umræða um dagskrá:
a) Fundargerð síðasta fundar nr. 131 og 132 lögð fram, engar athugasemdir gerðar við þær.
2) Trúnaðarmál:
Kynntar afgreiðslur á fjárhagsaðstoð, bókað í trúnaðarmálabók.
3) Aðsend erindi:
a) Félagsmálastjóri lagði fram styrkbeiðni frá Kvennaathvarfinu þar sem óskað er eftir fjárstyrk að upphæð 200.000. Félagsmálaráð hafnar erindinu.
b) Lagður var fram tölvupóstur frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um aðgerðir til að jafna betur stöðu kynja í sveitarstjórnum.
4) Fjárhagsáætlun ársins 2010:
a) Félagsmálastjóri lagði fram breytingar á fjárhagsramma frá bæjarráði en rammi félagsþjónustu var lækkaður um 715.000 frá upphaflega úthlutuðum ramma. Einnig var félagsmálaráði gert að lækka ramma 02-50, málefni fatlaðra, niður í 10.500.000 sem er sami rammi og var árið 2008. Félagsmálaráð óskar efir því að bæjarráð endurskoði þessa ákvörðun og óskar jafnframt eftir að félagsmálastjóri komi með ítarlegar upplýsingar um málaflokkinn á þann fund.
b) Félagsmálaráð fór yfir starfsáætlun félagsþjónustusviðs fyrir árið 2010.
5) Endurskoðun á reglum:
Málinu vísar til næsta fundar
Næsti fundur ráðsins verður miðvikudaginn 9. desember kl. 16:00
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:00
Fundargerð ritaði Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri
Valdís Guðbrandsdóttir Jóhannes Hafsteinsson
Marinó Þorsteinsson Rósa Ragúels
Heiða Hilmarsdóttir

Dalvíkurbyggð






