Félagsmálaráð(132); 21.10.2009
21.12.2009Félagsmálaráð
132. fundur
33. fundur félagsmálaráðs 2006-2010.
Félagsmálaráð kom saman til fundar miðvikudaginn 21. október 2009 klukkan 9:30 í Ráðhúsinu á Dalvík. Mættir voru undirritaðir og sátu fundinn ásamt félagsmálastjóra.
Fyrir var tekið:
1) Fjárhagsáætlun ársins 2010
Farið var yfir fjárhagsáætlun og starfsáætlun félagsmálasviðs fyrir árið 2010. Ljóst er að úthlutaður rammi félagsþjónustusviðs er ekki nægjanlegur fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir. Félagsmálaráð óskar eftir hækkun á fjárhagsramma samkv. tillögum að fjárhagsáætlun.
2) Styrkbeiðni frá Dalbæ
Óskað var eftir styrk að upphæð 4.000.000 vegna félags- og leiðbeiningastarfs á Dalbæ. Félagsmálaráð samþykkti að veita styrk að upphæð 3.000.000. Félagsmálastjóra falið að fá upplýsingar um félags- og leiðbeiningastarfið á Dalbæ.
Næsti fundur ráðsins verður miðvikudaginn 11. Nóvember 2009 kl. 16:00
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:00
Fundargerð ritaði Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri
Valdís Guðbrandsdóttir, Jóhannes Hafsteinsson
Marinó Þorsteinsson, Rósa Ragúels
Heiða Hilmarsdóttir

Dalvíkurbyggð






