Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

Félagsmálaráð(131);14.10.2009

21.12.2009

Félagsmálaráð
131. fundur
32. fundur félagsmálaráðs 2006-2010.

Félagsmálaráð kom saman til fundar miðvikudaginn 14. október 2009 klukkan 16:00 í Ráðhúsinu á Dalvík. Mættir voru undirritaðir og sátu fundinn ásamt félagsmálastjóra.

Fyrir var tekið:

1) Umræða um dagskrá:
a) Fundargerð síðasta fundar nr. 130 lögð fram, engin athugasemd gerð við hana.

2) Trúnaðarmál:
Kynntar afgreiðslur á fjárhagsaðstoð, bókað í trúnaðarmálabók.

3) Aðsend erindi:
a) Félagsmálastjóri lagði fram erindi frá Aflinu þar sem óskað var eftir fjárstyrk. Félagsmálaráð samþykkir að styrkja Aflið um 20.000 en þess má geta að Aflið var einnig styrk fyrr á árinu um 40.000 krónur.
b) Kynnt var áskorun frá Kvenfélagasambandi Íslands. 35. Landsþing KÍ hvetur til að unnið verði áfram að forvörnum á þann veg að þær nái til flestra þátta í lífi allra aldurshópa. Einnig vakti sambandið athygli á miklum tannskemmdum meðan ísl. barna og unglinga og hvetja þær til að vatni og mjólk sé haldið að börnum.
c) Kynnt var bréf frá Velferðarvaktinni en þar kemur fram að í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga beinir velferðarvaktin því til sveitarstjórna og skólanefnda að tryggt verði með öllum tiltækum ráðum að börn í skólum á þeirra vegum fái alla skóladaga hádegisverð.
d) Kynnt var skýrsla um öldrunarþjónustu.
e) Kynntur tölvupóstur frá Félags- og tryggingamálaráðuneytinu um norræna ráðstefnu um Velferð á tímum efnahagsþrenginga.
f) Kynnt var boð á norræna ráðstefnu um Áhrif atvinnuþátttöku eldra fólks á heilsu og lífsgæði.
g) Kynnt var bréf frá Félags- og tryggingamálaráðuneytinu um að unnið sé að rannsókn á ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum.
h) Lagður var fram tölvupóstur frá Félags- og tryggingamálaráðuneytinu þar sem fram kemur að á upplýsingavefnum island.is er nú hægt að lesa spurningar og svör þar sem útskýrt er hvað felst í boðuðum aðgerðum stjórnvalda gegn skuldavanda heimilanna.
i) Lagt var fram bréf frá Félagi heyrnarlausra þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið kaupi happdrættismiða af félaginu. Félagsmálaráð hafnar erindinu.
j) Lagt var fram bréf frá stjórn Dalbæjar þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 4.000.000 vegna félags- og leiðbeiningastarfs á Dalbæ, málinu er vísað frá bæjarráði. Félagsmálaráð frestar umræðunni til næsta fundar.
k) Lagður var fram tölvupóstur frá Samhjálp þar sem óskað er eftir fjárstyrk. Félagsmálaráð hafnar erindinu.
l) Lagt var fram bréf frá Neytendasamtökunum þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna ársins 2010. Félagsmálaráð hafnar erindinu.

4) Jafnréttisráð:
Félagsmálastjóri lagði fram bréf frá Jafnréttisstofu en gefin hefur verið út handbókin Jöfnum leikinn um kynjasamþættingu. Handbókina má sjá hjá félagsmálastjóra.


5) Fjölmenningarstefna:
Farið var yfir Fjölmenningarstefnu Eyþings. Í henni eru margir góðir og gagnlegir punktar sem hægt væri að nýta í málefnum nýbúa. Ljóst er að sum verkefni sem þar er að finna myndu kalla á aukið fjármagn sem ekki er til innan málaflokksins.


6) Endurskoðun á reglum:
a) Reglur um félagslega heimilsþjónustu í Dalvíkurbyggð. Félagsmálaráð samþykkir breytingartillögur starfsmanna félagsþjónustu.
b) Reglur um liðveislu. Félagsmálaráð vísar málinu á ný til starfsmanna félagsþjónustu sbr. umræður á fundi.
c) Reglur um ferðaþjónustu. Félagsmálaráð vísar málinu til starfsmanna félagsþjónustu sbr. umræður á fundi og verður málið tekið fyrir á næsta fundi ráðsins.

7) Umsókn um leyfi til gæslu barna í heimahúsi.
Umsókn um gæslu barna í heimahúsi barst frá Hafdísi Sverrisdóttur. Félagsmálaráð samþykkir umsókn hennar til þriggja ára.


8) Fjárhagsáætlun 2010
Félagsmálaráð fór yfir fjárhagsramma fyrir árið 2010, málinu vísað til næsta fundar.


Næsti fundur ráðsins verður 21. október kl. 9:30


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:30

Fundargerð ritaði Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri


Valdís Guðbrandsdóttir, Jóhannes Hafsteinsson
Marinó Þorsteinsson, Rósa Ragúels
Heiða Hilmarsdóttir

Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Vetrarævintýri í Dalvíkurbyggð
  • Sorphirða
  • Nágrannavarsla

Viðburðadagatal

« mars 2010 »
m þ m f f l s
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31