Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

Bæjarráð(527); 17.12.2009

17.12.2009

 
Bæjarráð Dalvíkurbyggðar

527. fundur
153. fundur bæjarráðs 2006-2010

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar, fundur haldinn í Ráðhúsinu á Dalvík fimmtudaginn 17. desember 2009 kl. 08:15.
Undirrituð sátu fundinn ásamt bæjarstjóra og fjármála- og stjórnsýslustjóra.


Fyrir var tekið:

1. Þriggja ára áætlun Dalvíkurbyggðar 2011-2013, sbr. 525. fundur bæjarráðs frá 3. desember 2009.

Á 526. fundi bæjarráðs þann 3. desember 2009 var til umræðu vinna við þriggja ára áætlun 2011-2013 og fyrirsjáanlegar breytingar á rekstri og fjárfestingum frá fjárhagsáætlun 2010.

1. a) Með fundarboði bæjarráðs fylgdi vinnublað innanhúss sem er samantekt á upplýsingum frá stjórnendum vegna 2011-2013 sem fylgdu með starfsáætlunum fyrir árið 2010.

1. b) Lagt fram á fundinum yfirlit, vinnublað innanhúss, frá sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs vegna tillagna og áætlaðra breytinga á málaflokkum 04,05 og 06, bæði hvað varðar rekstur og fjárfestingar.

1. c) Lagt fram á fundinum yfirlit, vinnublað innanhúss, frá sviðstjóra félagsmálasviðs vegna tillagna og áætlaðra breytinga á málaflokknum 02 hvað varðar rekstur.

Umfjöllun um þriggja ára áætlun áfram haldið á næsta fundi bæjarráðs.


2. Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, tilfærsla á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga, sbr. 526. fundur bæjarráðs frá 10. desember 2009.

Á 526. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 10. desember s.l. var eftirfarandi bókað:

„Tekið fyrir bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 30. nóvember 2009, er varðar tilfærslu á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Kynnt er samþykkt sem gerð var á fundi stjórnar Sambandsins þann 27. nóvember s.l. þar sem fram kemur að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarstjórnir til þess að ræða og hefja sem fyrst undirbúning að myndun þjónustusvæða á grundvelli þeirra gagna sem verkefnisstjóri félags- og tryggingamálaráðuneytisins hefur sent sveitarfélögunum um flutning á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Vandaður undirbúningur sveitarstjórnarmanna og starfsmanna sveitarfélaga er undirstaða þess að vel takist til um tilfærslu þessa mikilvæga þjónustuverkefnis til sveitarfélaganna.
Á fundinum var lagt fram rafpóstur, dagsettur þann 17. nóvember 2009, ásamt fylgigögnum frá félags-og tryggingarmálaráðuneytinu er varðar yfirfærslu málefna fatlaða frá ríki til sveitarfélaga.
Umfjöllun verður áfram haldið á næsta fundi.“

Ofangreint áfram til umfjöllunar.


3. Frá fjármála- og stjórnsýslustjóra, staða bókhalds í samanburði við fjárhagsáætlun 2009, sbr. 520. fundur bæjarráðs frá 12. nóvember 2009.

Með fundarboði bæjarráðs fylgdi yfirlit yfir stöðu bókhalds þann 15. desember 2009 í samanburði við endurskoðaða fjárhagsáætlun 2009 með breytingum sem samþykktar voru á fundi bæjarstjórnar þann 8. desember s.l.

Fjármála- og stjórnsýslustjóri fór yfir nokkur atriði í stöðulistanum.

Lagt fram.


4. Frá fjármála- og stjórnsýslustjóra, yfirlit yfir staðgreiðslu janúar – nóvember 2009.

Með fundarboði bæjarráðs fylgdi yfirlit yfir innkomna staðgreiðslu fyrir janúar – nóvember 2009. Innkomin staðgreiðsla er kr. - 507.258.268 eða 17,13% hærri en fyrir sama tímabil í fyrra á verðlagi hvors árs fyrir sig. Samtals bókuð staðgreiðsla á árinu 2009 með eftirá álagningu er kr. -520.119.667 fyrir tímabilið janúar – nóvember 2009.

Lagt fram.

5. Trúnaðarmál.

Bókað í trúnaðarmálabók.

6. Frá framkvæmdastjórn, vegna jólagjafa til starfsmanna Dalvíkurbyggðar.

Rætt var um jólagjafir til starfsmanna. Bæjarráð samþykkir að fyrri forsendur verði óbreyttar.

7. Önnur mál.

a) Bjarnveig Ingvadóttir gerði grein fyrir afgreiðslum sveitarfélaga við erindi um hlutafjáraukningu í Flokkun ehf. vegna Moltu, sbr. 525. fundur bæjarráðs Dalvíkurbyggðar frá 2. desember s.l., 3. liður.

Ofnagreint rætt.

b) Bæjarstjóri lagði fram bréf frá félags- og tryggingarmálaráðuneytinu, dagsett þann 15. desember 2009, er varðar hækkun grunnfjárhæðar fjárhagsaðstoðar. Hækkunin er um 8.63% þannig að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til dæmis til einstaklings er kr. 125.540. Um er að ræða leiðbeinandi viðmið en ákvörðun um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er í höndum hvers og eins sveitarfélags.

Samkvæmt yfirliti frá félagsmálastjóra þá er fjárhagsaðstoð Dalvíkurbyggðar aðeins hærri en ofangreind viðmið.

Lagt fram.

Fleira ekki bókað
Fundi slitið kl. 10:30.

Fundargerð ritaði Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, fjármála- og stjórnsýslustjóri
Arngrímur V. Baldursson
Bjarnveig Ingvadóttir
Jóhann Ólafsson
Marinó Þorsteinsson


Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Vetrarævintýri í Dalvíkurbyggð
  • Sorphirða
  • Nágrannavarsla

Viðburðadagatal

« mars 2010 »
m þ m f f l s
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31