Bókasafn Dalvíkur verður til upp úr Lestrarfélagi Svarfdæla. 

Í raun má rekja sögu safnsins allt aftur til 1879, þegar nokkrir áhugasamir Svarfdælingar ákváðu að stofna Lestrarfélag Svarfdælinga. Aðalhvatamaður að stofnun Lestrarfélagsins var Þorsteinn Þorkelsson frá Syðra-Hvarfi og var hann jafnframt fyrsti formaður.

Starfaði safn þetta nær óslitið og óx og dafnaði til ársins1946. Þá hafði Svarfaðardalshreppi verið skipt í tvennt, Dalvíkurhrepp og Svarfaðardalshrepp og var því Lestrarfélagi Svarfdæla einnig skipt í tvennt. Bókum þess var skipt hinn 27. sept. 1946 að viðstöddum oddvitum hreppanna þeim Tryggva Jónssyni fyrir Dalvíkurhrepp og Gunnlaugi Gíslasyni, fyrir Svarfaðardalshrepp.

Þar með hefst saga Bókasafns Dalvíkur, sem var síðan stofnað formlega 20. marz 1949. Upphaflega voru bækur safnsins um 1000, en nú eru ríflega 22.000 titlar skráðir í Gegni.

Safnið hefur verið á nokkrum stöðum hérna á Dalvík, en árið 2009 - á sextugasta aldursári - flutti safnið í nýtt og glæsilegt húsnæði í Menningarhúsinu Bergi v/Goðabraut.