Samgöngur og veður

Samgöngur innan Dalvíkurbyggðar eru góðar sem og samgöngur við aðra þéttbýliskjarna og sem dæmi má nefna tekur aðeins um 35 mínútur að keyra til Akureyrar og um 15 mínútur til Ólafsfjarðar. Á veturnar er þjóðvegurinn mokaður alla daga vikunnar en vissara er þó að athuga vef Vegagerðarinnar áður en haldið er af stað sé um slæmt veður að ræða.
Hópferðamiðstöðin sér um áætlunarferðir milli Ólafsfjarðar, Dalvíkur og Akureyrar og koma þeir við á þremur stöðum á leiðinni frá Dalvík. Frekari upplýsingar um ferðirnar má finna á vef Hópferðabíla Akureyrar.
Frekari upplýsingar um færð og veður á svæðinu má finna á vef Vegargerðarinnar, www.vegagerd.is og Veðurstofu Íslands, www.vedur.is













