Dalvíkurbyggð - Spurning um lífsstíl
Samgöngur nútímans gera fólki kleift að stjórna búsetu sinni óháð því hvar það vinnur. Því viljum við benda fólki á það að búseta í Dalvíkurbyggð er raunhæfur kostur fyrir þá sem stunda vinnu í Eyjarfirði eða hvar sem er á landinu.
Dalvíkurbyggð hefur uppá að bjóða fjölbreytta búsetukosti án þess að það komi niður á þeirri þjónustu sem er í boði. Vegna þess hve vegalengdir eru litlar innan sveitarfélagsins er auðvelt að búa á Hauganesi, vera með hesta í Hringsholti í Svarfaðardal, stærsta hesthúsi landsins og vinna á Dalvík, Ólafsfirði, Akureyri eða hvar sem er. Samgöngur innan sveitarfélagsins eru góðar sem og samgöngur við aðra þéttbýliskjarna og aðeins tekur 30 mín. að keyra til Akureyrar.
Sveitarfélagið Dalvíkurbyggð býður viðskiptavinum sínum uppá öfluga þjónustu sem endurspeglast í metnaðarfullu skólastarfi, öflugri félagsþjónustu sem og annarri þjónust við íbúa sveitarfélagsins. Ýmis afþreying er í boði svo sem íþróttir, söngur og leiklist og ættu allir að geta fundið eitthvað sitt hæfi. Fjöldi klúbba og félaga er einnig starfandi svo sem bridge félag. Auk þess eru hér mjög skemmtilegar bæjarhátíðir, Svarfdælskur Mars og Fiskidagurinn mikli.
Ef þú hefur áhuga á að búa í rólegu og barnvænu umhverfi með frábæra þjónustu þá ættir þú að kynna þér það sem er í boði í Dalvíkurbyggð.
Hérna er hægt að finna allar upplýsingar sem þarf fyrir flutninga í okkar frábæra sveitarfélag á einum stað.

Dalvíkurbyggð






