Vikuna 12. - 16.desember ætlum við að blása til leynivinaviku í Tý. Þeir sem vilja taka þátt þurfa að mæta klukkan 19:30 á mánudaginn 12.des og fá frekari leiðbeiningar. Mikilvægt er að mæta tímanlega. Þá setjum við öll nöfn í hatt og svo dregur hver og einn eitt nafn og er það nafn leynivinur hans út vikuna. Ætlunin er að vera góður við leynivin sinn, gefa honum falleg skilaboð, fallegar ódýrar gjafir og stjana við hann en allt þetta þarf að gera í leyni og á hverjum degi. Á föstudaginn verður svo uppljóstrað hver er leynivinur þinn og lofum við miklu fjöri. Sjáumst!
Víkurröst
620 Dalvík
Sími: 460 4988
Verkefnastjóri:
Árni Jónsson
Starfsmenn:
Pálína Ósk Lárusdóttir
Viktor Már Jónasson