Vinnuskóli

Vinnuskólinn sumarið 2012
Vinnuskólinn sumarið 2011
Vinnuskólinn sumarið 2010
Vinnuskólinn sumarið 2009
Vinnuskólinn sumarið 2008
Vinnuskólinn sumarið 2007
Vinnuskólinn sumarið 2006
Aðsetur: Sandskeið 24, 620. Dalvík.
Sími: 466-1224
Bréfasimi: 864-0013
Umsjónamaður:
Jón Arnar Sverrisson
Sími: 898 3490
jonarnar@dalvikurbyggd.is
Hlutverk vinnuskóla Dalvíkurbyggðar
Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu byggðalagsins, auk lóðasláttar fyrir örorku- og ellilífeyrisþega.
Við vinnuskólann starfa unglingar úr 8. 9. og 10 bekk, yfir sumarmánuðina. Vinnutíminn er mismunandi eftir árgöngum, 6 til 10 vikur, hálfan eða heilan dag. Laun eru ákvörðuð af bæjarráði hverju sinni.
Markmið Vinnuskólans er að undirbúa unglingana í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Lögð er áhersla á samskiptareglur, ástundun og vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, yfirmönnum og bæjarbúum. Einnig eru kynnt grundvallaratriði í vinnubrögðum og notkun verkfæra.
Garðyrkjustjóri er umsjónarmaður Vinnuskólans. Með honum starfar yfirflokkstjóri og 6-7 flokkstjórar.
Umhverfisnefnd fer með málefni Vinnuskólans.











