Söfnin í Dalvíkurbyggð
Í Dalvíkurbyggð eru þrjú söfn, Bókasafn Dalvíkurbyggðar, Héraðsskjalasafn Svarfdæla og Byggðasafnið Hvoll. Bóka- og héraðsskjalasafn er til húsa í Bergi menningarhúsi við Goðabraut og Byggðasafnið hefur aðsetur að Karlsrauðatorgi 7.
Bóka - og Héraðsskjalasafn
Bókasafnið er almenningsbókasafn sem þjónar almenningi og skólum í Dalvíkurbyggð. Héraðsskjalasafnið safnar, varðveitir og skráir opinber skjöl í umdæminu (að skjölum ríkisstofnana frátöldum), einnig skjöl frá félögum og úr einkaeign, eins og kostur er. Einnig er unnið að söfnun og skráningu ljósmynda.
Heimasíða bóka- og héraðsskjalasafns
Byggðasafnið Hvoll
Byggðasafnið á Hvoli var formlega opnað 12. desember 1987.
Safnið er þrískipt; byggðasafn, náttúrgripasafn og mannasafn.
Munir safnis eru flestir af heimilum á Dalvíki, Svarfaðardal og Árskógsströnd. Þar eru ýmis áhöld og innanstokksmunir frá fyrri tíð sem vitna um þróun verkmenningar á Dalvík og nágrenni og sögu byggðarinnar. Einnig eru þar haganlega gerðir skrautmunir af ýmsum toga unnir af hagleiksfólki af svæðinu.
Á náttúrugripasafninu er fjöldi íslenskra fugla og spendýra og einstaka gestur úr undirdjúpunum. Þar er líka grasasafn, skeljasafn, eggja- og steinasafn.
Hinn hluti safnsins er tileinkaður minningu þjóðþekktra svarfdælinga - Jóhanns Péturssonar Svarfdælings, Kristjáns Eldjárns forseta Íslands og Friðriks Friðrikssonar æskulýðsleiðtoga auk alþýðulistamannana frá Litla-Árskógi Jóns, Kristjáns og Hannesar Vigfússona.













