|
Skólarnir í Dalvíkurbyggð búa yfir þeirri sérstöðu að njóta nálægðar við náttúruna og hafa þeir nýtt sér hana í skólastarfinu með vettvagsferðum út í náttúruna.
Grunnskóli
Reknir eru tveir grunnskólar í Dalvíkurbyggð, á Dalvík og á Árskógsströnd. Olweus eineltisáætlunin skipar stóran sess í stefnu skólanna en markmið hennar er m.a. að minnka eineltisvanda og auka félagstengsl.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum grunnskólanna:
Dalvíkurskóli www.dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli
Árskógarskóli www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli
Leikskólar
Í Dalvíkurbyggð eru þrír leikskólar. Krílakot og Kátakot eru á Dalvík en Árskógarskóli er á Árskógsströnd.
Krílakot
Á Krílakoti eru nú þrjár deildar, Skýjaborg, Skakkaland og Hólakot . Boðið er upp á 4-8 1/2 tíma vistun og tekur leikskólinn við börnunum þegar fæðingarorlofi lýkur og þar geta þau dvalist uns skólaganga hefst.. Alls geta dvalið milli 55 og 60 börn á þessum þremur aldursskiptu deildum, 1-2 ára á Skýjaborg, 3-4 ára á Skakkalandi og elstu börnin eru svo á Hólakoti. Heimasíða Krílakots er www.dalvikurbyggd.is/krilakot
Kátakot
Kátakot er leikskóli á Dalvík. Leikskólinn heyrir undir Dalvíkurskóla en starfar eins og leikskóli. Þar eru börn á aldrinum 4 og 5 ára. Heimasíða Kátakots er www.dalvikurbyggd.is/katakot
Árskógarskóli
Árskógarskóli er skóli fyrir börn á aldrinum 9 mánaða til 12 ára. Eitt meginmarkmið skólans er að vera útiskóli en skólinn flaggar einnig grænfána. www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli
Tónlistarskóli
Tónlistarskóli Dalvíkur leggur grunninn að tónlistarmenntun nemenda sinna. Hann býður nemendum upp á nám í eftirfar-andi greinum: Hljómborðshljóðfæri (piano, hljómborð og harmoniku), gítar (klassískan og rafgítar), fiðlu, málm- og tréblásturshljóðfæri. Auk þess er starfandi forskóladeild bæði sem skyldugrein fyrir alla nemendur 2. bekkjar í byggðinni og frjálst nám fyrir yngri nemendur. Heimasíða Tónlistarskólans er www.dalvikurbyggd.is/tonlistarskoli
|