Endurvinnslustöð
Sorphirða
Gámaþjónusta Norðurlands ehf og Sorp ehf sjá um sorphirðu í Dalvíkurbyggð. Tvær tunnur eru undir heimilissorp, svört tunna fyrir óflokkað sorp og græn fyrir flokkað endurvinnanlegt sorp. Í svörtu tunnunni er 30 lítra, brúnleitt innlegg sem er undir lífrænan úrgang og í grænu tunnunni er stærra svart innlegg fyrir hluta af endurvinnanlega efninu. Svarta tunnan er losuð á tveggja vikna fresti en græna tunnan mánaðarlega.
Sorphirðudagatal fyrir þéttbýli
Sorphirðudagatal fyrir dreifbýli
Leiðbeiningar um lífræna söfnun
Leiðbeiningar fyrir grænu tunnuna
Endurvinnslustöð Dalvíkurbyggðar
Endurvinnslustöð Dalvíkurbyggðar er staðsett við Sandskeið. Rekstur Endurvinnslustöðvarinnar er í höndum Gámaþjónustunnar.
Opnunartími gámasvæðisins er eftirfarandi:
• Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 15:00 - 18:00
• Laugardaga frá kl. 11:00 - 14:00
• Lokað er á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum
Bannað er að skilja sorp eftir fyrir utan girðingu Endurvinnslustöðvarinnar.
Vakin er athygli á því að svæðið er ekki leikvöllur barna og unglinga. Þar geta leynst hættulegar gildrur og ekki síður hættuleg efni. Foreldrar eru því beðnir um að brýna það fyrir börnum sínum.
Flokkun sorps á Endurvinnslustöð
Sorp til endurvinnslu og förgunar er flokkað á eftirfarandi hátt á Endurvinnslustöð;
- Timbur
- Málmar og brotajárn, allt frá niðursuðudósum upp í bifreiðar
- Garðaúrgangur
- Pappír, pappi, dagblöð, tímarit og auglýsingapésar
- Plast
- Fernur
- Kælitæki
- Hjólbarðar
- Raftæki
- Spilliefni ( rafhlöður, rafgeymar, olíuafgangar, málningarafgangar og fleira )
- Óflokkað sorp
- Fatnaður (gámur merktur Rauða krossinum)
Litlu gráu gámarnir eru fyrir óflokkað heimilisrusl.
Endurvinnsslustöð tekur við afskráðum bifreiðum og starfsmaður þess gefur út skilavottorð. Nú er greitt skilagjald kr. 15.000 fyrir bifreiðar skráðar eftir 1980.
Aðrir flokkunarstaðir
Móttaka skilagjaldsskildra drykkjarumbúða (dósamóttakan) er hjá Landflutningum Samskip (FMN), Ránarbraut 2b, á fimmtudögum milli 14:00 og 17:00.













