Aldraðir
Þjónusta við aldraða
Málefni eldri borgara heyra undir félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar og annast hún skipulagningu og hefur umsjón með heimilisþjónustu.
Félagsstarf aldraðra og tengls við samtök eldri borgara eru einnig á verksviði félagsþjónustunnar.Að öðru leyti heyra málefni eldri borgara að mestu undir Dalbæ, dvalarheimili aldraðra, sem er sjálfseignarstofnun.
Dalbær veitir meðal annars þjónustu í dagvistun, mötuneyti, ráðgjöf, akstursþjónustu, félags-og föndurstarf aldraðara og hársnyrtingu. . Sérstök gjaldskrá gildir fyrir þjónustu mötuneytis, akstur og hársnyrtingu. Önnur þjónusta er án endurgjalds notenda nema efniskostnaður í föndurstafi.
Starfsmaður félagsþjónustunnar aðstoðar fólk við umsóknir um dvalarrými á Dvalarheimilum aldraðra og gerir úttekt á þörf viðkomandi fyrir dvalarrými og gerir greinagerð þar um sem send er vistunarnefnd um dvalarrými í heilbrigðisumdæmi Norðurlands. Sú nefnd starfar á Akureyri og er hún ábyrg fyrir endanlegu mati á þörf einstaklings fyrir dvalarrými.
Aldraðir eiga eins og aðrir íbúar rétt á félagslegri ráðgjöf hjá starfsfólki félagsþjónustunnar.
Hér til hliðar má sjá fleiri upplýsingar













