Námsver
Námsframboð í Námsverinu veturinn 2010 - 2011
Námsframboð í Námsveri vorönn 2010
Dalvíkurbyggð rekur námsver að Skíðabraut 12 á Dalvík. Námsverið er í starfstengslum við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (SímEy). Námsverið er vettvangur fullorðinsfræðslu og símenntunar í Dalvíkurbyggð og er tilgangur þess að stuðla að aukinni símenntun og hærra menntunarstigi í byggðarlaginu með auknum námsmöguleikum í heimabyggð.
Í námsverinu eru möguleikar til fjarnáms og fræðslufunda um fjarfundarbúnað. Samningur er á milli Dalvíkurbyggðar, SímEy og Háskólans á Akureyri um fjarkennslu frá HA í námsverinu. Einnig er hægt að miðla námi frá öðrum þeim aðilum á framhalds- eða háskólastigi sem eru með fjarkennslu. Þá er möguleiki á samvinnu við aðra þá fræðsluaðila sem bjóða uppá skipulega kennslu eða fræðslufundi um einstök efni.
Í námsverinu er vinnuaðstaða og borðtölvur fyrir þá sem vilja nýta sér þær og þeir sem koma með fartölvur geta tengt sig inn á netið.
Í námsverinu eru haldin námskeið, bæði starfstengd og tómstundanámskeið. Þau eru auglýst á vef Dalvíkurbyggðar og í héraðsfréttamiðlum.
Þeir sem vilja nýta sér námsverið til náms geta snúið sér til Helga Svavarssonar, verkefnisstjóra, sími 865 7571 eða á helgis@simey.is
Ef þú hefur hugmynd um eða áhuga á námskeiði eða fræðslufundi sem þú telur að gæti átt heima í námsverinu hafðu þá endilega samband.
Húsvörður í námsverinu er Eiríkur Helgason í síma 661 8148 eða 466 1541.

Dalvíkurbyggð






