Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

Skólar í Dalvíkurbyggð

Skólarnir í Dalvíkurbyggð búa yfir þeirri sérstöðu að njóta nálægðar við náttúruna og hafa þeir nýtt sér hana í skólastarfinu með vettvagsferðum út í náttúruna.

Grunnskóli
Rekinn er einn grunnskóli í Dalvíkurbyggð en kennsla er á tveimur stöðum, á Dalvík og á Árskógsströnd. Olweus eineltisáætlunin skipar stóran sess í stefnu skólans en markmið hennar er m.a. að minnka eineltisvanda og auka félagstengsl.

Nánari upplýsingar um grunnskólann má finna á heimasíðu skólans, www.dalvikurskoli.is og http://arskogarskoli.dalvik.is.

Leikskólar
Í Dalvíkurbyggð eru þrír leikskólar. Krílakot og Kátakot eru á Dalvík en Leikbær er á Árskógsströnd.

Krílakot
Á Krílakoti eru nú þrjár deildar, Skýjaborg, Skakkaland og Hólakot . Boðið er upp á 4-8 1/2 tíma vistun og tekur leikskólinn við börnunum þegar fæðingarorlofi lýkur og þar geta þau dvalist uns skólaganga hefst.. Alls geta dvalið milli 55 og 60 börn á þessum þremur aldursskiptu deildum, 1-2 ára á Skýjaborg, 3-4 ára á Skakkalandi og elstu börnin eru svo á Hólakoti. Heimasíða Krílakots er www.dalvik.is/krilakot

Leikbær
Leikbær er leikskóli sem staðsettur er á Árskógsströnd en þar er rými fyrir 20 börn samtímis á einni deild. Heimasíða Leikbæjar er  http://leikbaer.dalvik.is/

Kátakot
Kátakot er leikskóli á Dalvík. Leikskólinn heyrir undir Dalvíkurskóla en starfar eins og leikskóli. Þar eru öll 5 ára börn á Dalvík auk 3 og 4 ára börnum eftir því sem pláss leyfir.

Tónlistarskóli
Tónlistarskóli Dalvíkur leggur grunninn að tónlistarmenntun nemenda sinna. Hann býður nemendum upp á nám í eftirfar-andi greinum: Hljómborðshljóðfæri (piano, hljómborð og harmoniku), gítar (klassískan og rafgítar), fiðlu, málm- og tréblásturshljóðfæri. Auk þess er  starfandi forskóladeild bæði sem skyldugrein fyrir alla nemendur 2. bekkjar í byggðinni og frjálst nám fyrir yngri nemendur

Dalvíkurskóli

Árskógarskóli

 

Krílakot

Leikbær

Fagrihvammur

Tónlistarskóli Dalvíkur

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Vetrarævintýri í Dalvíkurbyggð
  • Sorphirða
  • Nágrannavarsla

Viðburðadagatal

« mars 2010 »
m þ m f f l s
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31