Fréttir af Fiskideginum mikla 2010
Um 150.000 matarskammtar á súpukvöldi og Fiskidegi.
Flugeldasýning sem verður seint toppuð
20.000 manns á ógleymanlegri afmælisdagskrá
Heiðranir.
Allir fengu risamálverk að gjöf.
Einmuna veðurblíða
Fiskidagurinn mikli styrkir Hjálparstarf kirkjunnar.
Talið er að um eða yfir 35.000 manns hafi sótt Dalvíkurbyggð heim um helgina í einmuna blíðu allan tímann en þar var Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur. Umferð gekk mjög vel miðað við fjölda og er gestum þakkað sérstaklega fyrir þolinmæði og rólegan akstur. Bærinn var ríkulega skreyttur og töldu margir að ganga um bæinn væri eins og að vera á að risastórri skraut og listasýningu.
Vináttukeðjan.
Föstudaginn 7. ágúst var dagskrá í kirkjubrekkunni sem er nokkurskonar setningarathöfn fyrir Fiskidaginn mikla og allt sem að honum snýr. Vináttukeðjan er hlý og notaleg stund þar sem að staldrað er við og hugað að vináttunni og náungakærleikanum. Aron Óskarsson og Gyða Jóhannesdóttir ásamt hljómsveitinni Ofnæmum frumfluttu og gáfu Fiskideginum mikla lag “Kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla” , Stefán Þór Friðriksson, Dana Ýr Antonsdóttir, Matthías Matthíasson, Gyða Jóhannesdóttir, Karlakór Dalvíkur og leikskólabörn sungu, séra Pálmi Matthíasson flutti vinátturæðuna 2010, 5000 friðardúfublöðrum var sleppt, 10 skoteldum skotið upp, knúskorti með bókavinningum frá Sölku bókaforlagi dreift og að lokum knúsuðust allir viðstaddir.
Fiskisúpukvöldið mikla.
Á föstudagskvöldinu buðu um 120 fjölskyldur í Dalvíkurbyggð uppá fiskisúpu og vinalegheit. Hver sá sem bauð uppá súpu var með sína uppskrift. Um 24.000 manns voru á röltinu þetta kvöld og nutu gestrisni heimamanna. Kvöldið tókst einstaklega vel og gesti vantaði lýsingarorð til að segja frá þessum einstaka viðburði. Ánægðastir af öllum ánægðum voru líklega þeir íbúar sem buðu uppá súpu.
Fiskidagurinn mikli.
Laugardaginn 8. ágúst milli kl 10.30 – 17.00 var Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur í tíunda sinn sinn á hafnarsvæðinu á Dalvík. Dagskráin hófst með
magnaðri þyrlubjörgunarsýningu frá Landhelgisgæslunni. Þyrlan Líf og Varðskipið Týr voru síðan til sýnis yfir daginn. Um eða yfir 130.000 matarskammtar runnu ljúflega ofan í gesti Fiskidagsins mikla, til að mynda voru bakaðar 16 120 tommu saltfiskpizzur, 1200 lítrar af austurlenskri súpu og rúmlega 10.000 fiskborgarar grillaðir. Boðið var uppá ferska rækju, Úlfar Eysteinsson á Þremur frökkum, yfirkokkur dagsins, bauð uppá bleikju og hrefnu sasimi, settur var upp Sushi ísbar sem vakt mikla athygli, humarsúpa, saltfiskbollur og nýveiddur og ferskur kræklingur glöddu bragðlaukana og sama má segja um alla réttina á matseðlinum sem hefur aldrei verið eins fjölbreyttur. Skipulag á matarstöðvunum gekk mjög vel og nóg var til. Fiskidagurinn mikli hefur nú þegar sent hjálparstarfi kirkjunnar 4 – 5 bretti af mat sem var eftir. Fjölbreytt dagskrá gekk afar vel fyrir sig
og fjölskyldan gat fundið margt til að gera saman. Fulltrúi ungu kynslóðarinnar hélt ræðu dagsins, það var hin 15 ára Dalvíkurmær Gyða Jóhannesdóttir og á annað hundrað skemmtikrafta komu fram. Hátíðinni lauk síðan með vandaðri afmælisdagskrá um kvöldið í boði Samherja, þar sem allir sem stigu á stokk fóru á kostum, Matti Matt, Pétur Örn og Beggi Kára stjórnuðu bryggjusöng, Eyþór Ingi Gunnlaugsson tryllti lýðinn ásamt Deep Purple tribute bandi sínu og að lokum mætti Karlakór Dalvíkur á svið með stjórnanda sínum Guðmundi Óla Gunnarssyni ásamt rokkhljómsveit Matta Matt með sjóðheitt Bítla og Queen prógramm sem lengi verður í minnum haft. Í kjölfarið sáu um 20.000 manns eina mögnuðustu flugeldasýningu sem send hefur verið í loftið á Íslandi sýning sem sett var upp af björgunarsveitinni á Dalvík og og var í boði tveggja brottfluttra Dalvíkinga, Jóns Ægis Jóhannssonar sem býr og starfar í Kanada og Friðriks Más Þorsteinssonar sem býr og starfar í Bretlandi.
Almenn ánægja og frábær aðsókn var í aðra dagskrárliði tengda og ótengda Fiskideginum mikla, má þar nefna Fiskidagshlaup um Svarfaðardalinn, tónleikana Bergmál, Fiskidagsfjallgöngu á Karlsársetann, leiki og leikrit fyrir börnin, tónleika, sýningar og fleira.
Fiskidagurinn mikli 2010 tókst í alla staði mjög vel og er það mál jafnt gesta sem skipuleggjenda að hátíðin í ár hafi verið sú besta frá upphafi, og má þar m.a nefna dagskrána á aðalsviðinu, skipulag, matseðil, veður, afmælisdagskránna og ógleymanlega flugeldasýningu.
Heiðrun
Á hverju ári heiðrar Fiskidagurinn mikli einstaklinga, fyrirtæki eða tímabil. Í ár voru tveir nafnar kallaðir uppá svið, Þorsteinn Már Aðalsteinsson fiskverkandi og formaður stjórnar Fiskidagsins mikla og Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja, Kristján Vilhelmsson frá Samherja var einnig kallaður upp.
Fiskidagurinn mikli heiðrar árið 2010 Samherja hf
Samherji hf er heiðraður fyrir margháttaða sjávarútvegs-starfsemi á Dalvík. Á árinu 2010 eru 10 ár frá því Samherji hf kom að rekstri frystihússins á Dalvík. Frystihúsið hefur um áratugaskeið verið stærsta fiskvinnslufyrirtækið á Dalvík og verið í farabroddi fiskvinnslufyrirtækja á landinu. Á þeim áratug sem Samherji hf hefur rekið frystihúsið hefur hráefnið sem unnið er í húsinu tvöfaldast. Starfsmönnum hefur fjölgað á þessu tímabili en jafnframt hefur mikil framleiðniaukning og hagræðing átt sér stað. Í dag rekur Samherji hér á Dalvík fullkomnustu fiskvinnslu á landinu, og þótt víðar væri leitað. Sérstaklega er Samherji hf heiðraður fyrir öflugan stuðning við Fiskidaginn mikla. Árið sem Samherji hf hóf rekstur frystihússins á Dalvík var ákveðið að halda Fiskidaginn mikla í fyrsta sinn. Frá upphafi hefur Samherji hf verið aðalstyrktaraðili hátíðarinnar og alla tíð lagt til uppistöðu hráefnisins sem matbúið hefur verið fyrir gesti. Úrvals hráefni sem hefur gert það kleift að bjóða til veislu eins og á bestu veitingahúsum.
Fiskidagurinn mikli heiðrar árið 2010 Þorstein Má Aðalsteinsson fiskverkanda
Þorsteinn Már Aðalsteinsson hafði á árinu 2001 frumkvæði að Fiskideginum mikla. Fiskverkendur á Dalvík ákváðu undir hans forustu að bjóða öllum landsmönnum til veislu og skemmtunar laugardaginn eftir verslunarmannahelgi. Hugmynd Þorsteins byggði á því að allt, matur og skemmtun á hátíðarsvæðinu, væri frítt. Þorsteinn hefur frá upphafi verið formaður stjórnar Fiskidagsins mikla og átt stóran þátt í því að gera Fiskidaginn mikla að þeirri fjölmennu hátíð sem raun ber vitni. Á fyrstu hátíðinni, árið 2001 voru gestir 5.800, á þeirri næstu 13.800 og síðan hefur þeim fjölgað ár frá ári þannig að árið 2009 er talið að um 38.000 gestir hafi verið á hátíðinni. Á árinu 1989 stofnuðu Þorsteinn Már og hans fjölskylda fiskvinnslufyrirtæki á Dalvík sem heitir Norðurströnd ehf. Fyrirtækið byrjaði smátt en hefur vaxið ár frá ári og náð að sérhæfa sig í vinnslu með góðum árangri. Þorsteinn Már er nú stjórnaformaður Norðurstrandar ehf.
Í tilefni af 10 ára afmælinu voru í raun ALLIR heiðraðir og fengu að gjöf risamálverk sem listamaðurinn og Dalvíkingurinn Vignir Hallgrímsson málaði í sumar á suðurvegg salthússins sem er á hátíðarsvæðinu. Verkið var afhjúpað af sex fulltrúum. Þeir voru: Ottó Jakobsson fyrir hönd stjórnar Fiskidagsins mikla, Hafdís Bjarnadóttir fyrir hönd sjálfboðaliða, Þorsteinn Sigfússon, (Steini Straumur frá Hólmavík) fyrir hönd allra gesta sem hafa komið, Kolbrún Pálsdóttir síldardrottning fyrir hönd matarstöðva, Hilmar Danílesson fyrrverandi forstjóri og stofnandi Sölku Fiskmiðlunar fyrir hönd styrktaraðila og Páll Kristinsson frá Landflutningum Samskip fyrir hönd gestgjafanna.
Allar nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla
Júlíus Júlíusson – 8979748.
Fiskidagurinn mikli 4. - 8. ágúst 2010
10 ára afmæli

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldinn hátíðlegur í Dalvíkurbyggð, fyrsta laugardag eftir Verslunarmannahelgi. Fiskverkendur og fleiri framtakssamir í byggðarlaginu bjóða, með hjálp góðra styrktaraðila, landsmönnum öllum upp á dýrindis fiskrétti, milli kl. 11:00 og 17:00. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. Matseðilinn breytist ár frá ári þó ávallt sé boðið upp á ákveðna vinsæla rétti. Af þeim er helst að nefna fiskborgarana sem grillaðir eru á lengsta grilli á Íslandi. Grillið er færiband og á því stikna borgararnir 8 metra leið. Á fjórtán grillstöðvum víða um svæðið grilla heimamenn allskonar fisktegundir legnar í ljúffengri maríneringu. Öllum réttum fylgja brauð og drykkir eins og hver getur í sig látið. Kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla bjóða íbúar byggðalagsins gestum og gangandi upp á fiskisúpu í heimahúsum. Afar vönduð og fjölbreytt skemmtidagskrá hefur prýtt hátíðina. Á aðalsviði koma fram landsþekktir menn meðal minna þekktra héðan úr byggðarlaginu. Þess utan er boðið er upp á skemmtisiglingu um fjörðinn, götuleikhús og margs konar sýningar. Af þeim ber einna hæst ferskfiskasýning með um 200 tegundum af fiskum.
Nánari upplýsingar um Fiskidaginn mikla eru hér.
Matseðill Fiskidagsins mikla 2010
Á fjórtán grillstöðvum víða um svæðið grilla heimamenn allskonar fisktegundir legnar í ljúffengri maríneringu. Auk þess er langgrillið, stærsta gasgrill á íslandi.
Dagskrá á aðalsviði Fiskidaginn mikla
Á aðalsviði koma fram landsþekktir menn meðal minna þekktra héðan úr byggðarlaginu.
Dagskrá á hátíðarsvæði utan aðalsviðs
Ferskfiskasýning, hákarlaskurður, hoppukastali, harmonikkuleikur, sýningar og margt fleira...
Dagskrá í bænum
Fjölbreytt dagskrá verður um allan bæ dagana 2. - 7. júlí.
Sýnishorn úr fjölbreyttri dagskránni á Dalvík þessa daga:
Bergmál.
Í tilefni af 10 ára afmæli Fiskidagsins mikla verður Tónlistarhátíðin BERGMÁL á Dalvík haldin í fyrsta sinn dagana 2. - 5. ágúst. Í forsvari fyrir hátíðina eru Kristján Karl Bragason píanóleikari og Dalvíkingur, Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Grímur Helgason klarinettuleikari. Aðrir tónlistarmenn sem koma fram eru Björk Níelsdóttir sópran, Hugi Jónsson barýtón, Gróa Margrét Valdimarsdóttir fiðluleikari, Júlía Mogensen sellóleikari og Sólborg Valdimarsdóttir píanóleikari. Auk þeirra verða sérstakir gestir á lokatónleikum hátíðarinnar, stórtenórarnir Bragi Bergþórsson og Eyjólfur Eyjólfsson. Hátíðin samanstendur af fimm tónleikum með fjölbreyttri og veglegri dagskrá kammertónlistar og sönglaga. Frá setningartónleikum hátíðarinnar á frídegi verslunarmanna er haldið í fjögurra daga ferðalag um töfraheim tónlistarinnar og hitt fyrir nokkrar fegurstu perlur tónbókmenntanna.
“Ég fjörugum fiskum með færinu næ”
Þriðjudaginn 3. ágúst kl 19.30 opnar Gréta Arngrímsdóttir sýningu á þæfðum ullarfiskum í menningarhúsinu Bergi. Sýningin verður opin Fiskidagsvikuna frá 11.00 til kl 22.00. Annars á sama tíma og menningarhúsið er opið. Sýningin stendur til miðvikudagsins 18. ágúst.
Fiskarnir bera allir nöfn úr textum Emiliönu Torrini.
Allir velkomnir.
Blítt og létt.
Tónleikar með sjómanna, fiski og bátssöngvum úr ýmsum áttum í Menningarhúsinu Bergi miðvikudaginn 4.ágúst kl.20.30. Forsala aðgöngumiða verður í byggðasafninu Hvoli. Miðaverðið er 2.000 kr. Flytjendur: Sigríður Aðalsteinsdóttir, Samkór Svarfdæla, Adamssynir, Evudætur, Þórir Baldursson, Íris og Hjöri, María Vilborg Guðbergsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir
Sérstök afmælisdagskrá í boði Samherja
Laugardagskvöldið 7. ágúst kl. 22.00 fyrir neðan kaupfélagsbakkann verður dagskrá í boði Samherja þar sem að Matti Matt og félagar stjórna bryggjusöng, Eyþór Ingi mætir með Deep Purple Tribute band og Karlakór Dalvíkur ásamt rokkhljósmveit með Bítla og Queen dagskrá. Enda punkturinn verður síðan risaflugeldasýning í boði tveggja brottfluttra heimamanna sem búa og starfa erlendis. Við viljum biðja gesti að fara varlega í brekkunni.
South River Band
Ein af þeim hljómsveitum sem sækir Dalvík heim á Fiskidaginn Mikla í ár er South River Band, sem á uppruna sinn á Kleifum í Ólafsfirði þar sem alltaf hefur verið mikið um söng. Liðskipan South River Band hefur lítið breyst síðan í byrjun. Enn eru prímus mótorar Syðri-Ár mennirnir Helgi Þór Ingason og Ólafur Þórðarson ásamt Ólafi Sigurðssyni frá Árgerði, sem stendur örfáum metrum norðan við Syðri-Á. Með þeim leika þessi misserin þeir Matthías Stefánsson úr Kleifargerði og Dalvíkingurinn Jón Kjartan Ingólfsson.
South River Band mun koma fram á hátíðardagskrá Fiskidagins mikla á stóra sviðinu og geta gestir þar fengið nasaþef af því sem hljómsveitin hefur uppá að bjóða. Fyrir þá sem ekki dugir nasaþefurinn einn mun South River Band efna til tónleika í hinu glæslilega menningarhúsi Dalvíkinga, Bergi, að kvöldi Fiskidags þegar kólna fer í grillunum - nánar tiltekið kl. 20:30.
Tveggja hæða strætó- Svarfaðardalsferð
Veislumiðlun á Árskógssandi verður með skoðunarferð um Svarfaðardal á 2 hæða strætó í Fiskidagsvikunni. Ferð sem tekur um 1 klst. Boðið verður upp á pylsur og drykk á leiðinni
Strætóinn fer frá bílaplaninu við æfingasvæði knattspyrnuvallarins á eftirtöldum tímum: miðvikudag, fimmtudasg, föstudag og laugardag kl. 11:00, 14:00 og 17:00 Miðar seldir á staðnum.
U.N.G á Fiskidaginn mikla
U.N.G. er kristilegt starf sem samanstendur af fólki sem keppist af því að gera heiminn betri og skemmtilegri. Hópurinn er skapandi, drífandi og hefur gaman af lífinu. Þau leyfa Guði að móta líf þeirra eins og hann vill og þau glðejast saman yfir öllum þeim góðu hlutum sem hann gerir í lífi þeirra. Þessi frábæri hópur verður með samkomutjald fyrir neðan Dalvíkurkirkju yfir Fiskidagshelgina, þar ætla þau að bjóða upp á góða tónlist, skemmtiatriði, lofgjörð, samfélag, mat, meiri mat, ævintýralegt barnastarf, leikrit, leiki, kaffi og kakó. Allir velkomnir.
UNG lógó.
Fiskileður í Fiskidagsvikunni - Gestastofa Sútarans á Dalvík
Gestastofa sútarans er staðsett á Sauðárkróki í einu sútunarverksmiðjunni í Evrópu sem framleiðir leður úr fiskroði. Með gestastofunni er ferðamönnum og almenningi opnaður aðgangur að sútunarverksmiðju og afurðum hennar á óvenjulegan hátt. Boðið er upp á skemmtilega skoðunarferð um verksmiðjuna þar sem fylgst er með hvernig roð er sútað svo úr verður úrvals fiskleður. Fiskleður hefur heillað hönnuði heimsþekktra vörumerkja eins og Prada, Dior og Nike. Nú hefur verið sett upp sérstök og í raun einstök Gestastofa í salnum sunnan við Klemmuna í Hafnarbraut á Dalvík. Viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Opnar þriðjudaginn 3.8. kl. 18:00 og er opið frá 11:00 til 21:00 alla daga. Sunnudaginn 8. 8. er opið til kl 15:00.
Fiskidagsfjallganga á Karlsárfjall
Með Halla Sig á toppinn. Í ár verðum við með hressandi fjallgöngu í tilefni af 10 ára afmælinu í samvinnu við Harald Sigurðsson. (Sonur Erlu og Sigga) www.naturalis.is
Mæting við bæinn Karlsá kl. 09:00 föstud. 6. ágúst. Karlsá er 3 km. norðan við Dalvík á leiðinni til Ólafsfjarðar. Karlsárfjall er fallegt vel formað fjall sem sem stendur rétt utan við Dalvík . Leiðin er afskaplega skemmtileg, þar sem hún liggur upp fjölbreyttan hrygg alla leið á toppinn. Í upphafi eru grónar brekkur og svo tekur við brött brekka með kjarri. Þá er komið á hrygginn sem við fylgjum upp á topp. Kjarrið sem er í hlíðum Karlsárfjalls er villt og hefur verið þar líkast til frá landnámi. Af gönguleiðinni sést vel um Eyjarfjörð, inn Svarfaðardal, Karlsárdal og yfir Dalvík.
Efnt til Fiskidagshlaups 6. ágúst
Í tilefni af 10 ára afmæli Fiskidagsins mikla á Dalvík verður föstudaginn 6.
ágúst boðið upp á almenningshlaup sem skokkhópurinn Eyrarskokk á Akureyri stendur fyrir í samstarfi við Fiskidaginn. Ekkert skráningargjald verður í hlaupið. Í fyrsta lagi verður boðið upp á að skokka Svarfaðardalshringinn sem mælist tæpir 26 km. Í öðru lagi 10 km hlaup þar sem hlaupið verður eftir þjóðveginum frá bænum Steindyrum í vestanverðum Svarfaðardal og í þriðja lagi 3 km skemmtiskokk þar sem hlaupið verður frá Syðra Holti í vestanverðum Svarfaðardal. Í öllum vegalengdunum er hlaupið upp afleggjarann að Böggvisstöðum og endað við Sundlaug Dalvíkur. Startað verður í Svarfaðardalshringinn klukkan 14.30 föstudaginn 6. ágúst frá Víkurröst. Klukkustund síðar, kl. 15.30, verður startað í 10 km hlaupið og kl. 16 í skemmtiskokkið. Ath. að þátttakendur í 10 km og 3 km skemmtiskokki þurfa sjálfir að koma sér á upphafsstaði hlaupanna frammi í Svarfaðardal. Tímataka verður í 10 km og Svarfaðardalshringnum. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í karla- og kvennaflokki í Svarfaðardalshringnum og 10 km hlaupinu. Skráning í þessar tvær vegalengdir þarf að hafa borist eigi síðar en um hádegi fimmtudaginn 5. ágúst. Skráningar skal senda á Óskar Þór Halldórsson - oskarth@ruv.is eða Einar Eyland - eey@eimskip.is Þátttakendur í skemmtiskokki þurfa ekki að skrá sig. Þeir mæta á upphafsstað hlaupsins á móts við Syðra Holt þar sem þeim verður startað kl. 16. Númer hlaupara í Svarfaðardalshringnum og 10 km hlaupinu verða afhent við Víkurröst á Dalvík frá kl. 12 til 14 föstudaginn 6. ágúst.
Ljósmyndasýning Samherja og Fiskidagsins mikla
Fiskidagurinn mikli og starfsemi Samherja á Dalvík fagna 10 ára afmæli sínu í ár.
Bæði eru í fremstu röð á sínu sviði í heiminum og eiga glæsta sögu að baki. Af því tilefni verður efnt til ljósmyndasýningar í Allahúsinu Ránarbraut (við hliðina á hátíðarsviðinu). Sýningin er opin alla Fiskidagsvikuna. Allir velkomnir og aðgangur er frír.
Opið: Frá þriðjudeginum 3. ágúst til föstudagsins 6. ágúst milli kl 14.00 og 18.00 og laugardaginn 7. ágúst frá kl 11.00 til kl 17.00
Fjölskylduganga fram að Kofa – Dísa í Dalakofanum
Fiskidagurinn mikli mun koma upp sérstakri gestabók í kofanum sem stendur í Böggvisstaðadal. Þeir sem skrifa í gestabókina lenda í potti og á aðalsviði Fiskidagsins mikla verða veglegir vinningar dregnir út. Kofinn stendur á tóftarbrotum smalakofa sem þar stóð til skamms tíma. Sagnir herma að þar hafi Davíð Stefánsson frá Fagraskógi ort kvæðið um Dísu í dalakofanum. Lagt verður upp frá Dalvíkurkirkju kl 19:00 miðvikidagskvöldið 4. ágúst og munu Brynjólfur Sveinsson, Sveinn Brynjólfsson, Þorsteinn Skaftason og Vilhelm Hallgrímsson leiða hópinn. Gangan tekur rúmar þrjár klukkustundir, fram og til baka og er öllum fær.
Ljósmyndasamkeppni Fiskidagsins mikla 2010
Fiskidagurinn mikli, Pedromyndir og Canon standa fyrir skemmtilegri ljósmyndasamkeppni sem allir geta tekið þátt í. Myndefnið verður að tengjast Fiskideginum mikla á einhvern hátt. Til að taka þátt skal velja hnappinn „ljósmyndasamkeppni“ á heimasíðu Fiskidagsins mikla www.fiskisdagur.muna.is og fylgja leiðbeiningunum. Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Myndum er hægt að skila inn til mánudagsins 16. ágúst.
Dalvíkurbyggð eins og stór listasýning
Allir íbúar í Dalvíkurbyggð fá sendan heim útsagaðan fisk og staur til að festa fiskinn á. Hvert heimili skreytir sinn fisk eftir sínu höfði. Nýtt í ár í tilefni af 10 ára afmælinu verður “Minningarsnúra” þar sem að íbúar hengja upp myndir frá s.l. árum og jafnvel munu vísur sem hafa að geyma Fiskidagsminningar prýða snúruna sem verður sett út við lóðamörk. Miðvikudaginn fyrir Fiskidaginn mikla er fiskurinn og snúran sett út að lóðarmörkum þar sem gestir og gangandi geta séð hann. Jón Arnar garðyrkjustjóri ásamt sínu fólki hjá Dalvíkurbyggð og vinnuskólanum skreyta bæinn og innkeyrslur í bæinn listilega vel. Að auki eru íbúarnir í Dalvíkurbyggð listamenn miklir og skreyta hús og garða á skemmtilegan máta. Það má segja að þeir sem fá sér göngutúr um bæinn séu á stórri og eftirminnilegri listasýningu. Í Fiskidagsvikunni breytast götunöfnin á Dalvík, þá er fyrri hluti nafnanna hvíldur og fiskanöfn sett í staðinn.
Vináttukeðjan
Það má segja að setning Fiskidagsins mikla sé á Vináttukeðjunni sem hefst við Dalvíkurkirkju kl. 18:00 föstudaginn 6. ágúst. Meðal aðila sem fram koma eru Aron og Stefán Þór, Matti Matt og Gyða Jóhannesdóttir, Íris Hauks ásamt hljómsveit, Karlakór Dalvíkur og leikskólabörn í Dalvíkurbyggð. Vinátturæðuna flytur séra Pálmi Matthíasson, 5.000 friðardúfublöðrum verður sleppt, knúskortinu dreift, bókavinningar dregnir út fá Sölku bókaforlagi sem á 10 ára afmæli um þessar mundir eins og Fiskidagurinn mikli. Frumflutt verður lag sem er gjöf frá Aroni Óskarssyni til Fiskidagsins.
Fiskasýningin
Í átta ár hefur Skarphéðinn Ásbjörnsson staðið fyrir, í samvinnu við Fiskidaginn mikla, áhugaverðri fiskasýningu þar sem sýndir eru ferskir fiskar á ís. Fiskasýningin í ár verður sú stærsta. Fyrsta árið 2002 voru tegundirnar um 60-70 en nú verða þær ríflega 200.
Þess má geta að hákarlinn á sýningunni er sá stærsti frá upphafi og er gjöf frá Grímseyingum, hann verður skorinn kl. 15:00.
Leikhópurinn Lotta sýnir Hans klaufa í brekkunni hjá kirkjunni
Laugardaginn 7.ágúst sýnir Leikhópurinn Lotta nýjasta verk sitt, Hans klaufa í brekkunni við kirkjuna á Dalvík.Verkið skirfaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson, en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka teppi til að sitja á og myndavél en börnin fá að hitta karakterana úr sýningunni og þá er gaman að festa það á filmu. Miðaverð er 1.500 kr. og hefst sýningin klukkan 17:30.
Hvanndalsbræður og fleiri bræður gefa lag og halda dansiball
Hvanndalsbræður hafa tekið þátt í Fiskideginum mikla í sex ár og eru alltaf jafn skemmtilegir og jákvæðir. Í ár verða þeir á aðalsviðinu að vanda og á laugardagskvöldið verða þeir með Magna Ásgeirsson með sér á Dansleik í Víkurröst sem er á vegum knattspyrnuliðs Dalvíkur/Reynis. Þeir bræður munu eflaust flytja lagið “Dragðu mig til Dalvíkur”, lag eftir Birgi Henningsson og texti eftir Guðna Má Henningsson sem þeir færðu Fiskideginum mikla í tilefni af 10 ára afmælinu.
Tónleikar Deep Purple tribute band og fl.
Það verða ýmsir tónleikar í Fiskidagsvikunni, má nefna Blítt og létt tónkeikana í Bergi, Bergmál tónlistarhátíðina og South River Band í Bergi. Ónefndir eru útitónleikar sem Stjaron verður með á fimmtudagskvöldinu á Húsasmiðjuplaninu. Þar koma fram ung bönd af Eyjafjarðarsvæðinu. Síðast en ekki síst verða tónleikar á föstudagskvöldinu 6. ágúst í Víkurröst þar sem Eyþór Ingi mætir með Deep Purple Tribute Band. Tónleikarnir hefjast kl 22:30. Miðasala við innganginn 1.500 kr. miðinn. Nánar um þessa tónleika og alla aðra viðburði á heimasíðu dagsins og í dagskránni í fiskidagsblaðinu, sem liggur frammi um allan bæ á fiskidagshátíðinni.
Heimasíða Fiskidagsins Mikla er http://www.fiskidagur.muna.is/

Dalvíkurbyggð






