Breytingar á skólamálum í Árskógi
Mánudaginn 26. september 2011 standa bæjarstjórn og fræðsluráð Dalvíkurbyggðar fyrir íbúafundi um mögulegar breytingar á skólahaldi í Árskógi. Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu í Árskógi klukkan 16:30.
Starfshópur sem unnið hefur tillögur að breytinum á skólahaldi í Árskógi mun kynna niðurstöður vinnunnar og hugmyndir að breytingum á húsnæði . Starfsmenn, foreldrar og aðrir áhugasamir um skólastarf í Dalvíkurbyggð eru hvattir til að mæta, kynna sér tillögurnar og koma með ábendingar.
Íbúar eru einnig hvattir til þess að senda skriflegar ábendingar á netfangið helgabjort@dalvikurbyggd.is fyrir 29. september.
Fundargerðir starfshóps:
1. fundur
2. fundur
3. fundur
4. fundur
5. fundur
6. fundur
7. fundur
8. fundur, íbúafundur
8. fundur











