
FUGLARNIR KOMA ÚT ÚR SKÁPNUM!
Sýningin FRIÐLAND FUGLANNA Er nýstárleg sýning fyrir börn og fullorðna um fugla í náttúru og menningu Íslands. Sýningin er sett upp með þarfir barna í huga en er þó bæði fróðleg, falleg og ekki sístskemmtileg fyrir alla aldurshópa. Þar er fjallað um þróunarsögu fuglanna, líffræði þeirra og eðlisfræði, tilhugalíf, fuglasöng, hreiðurgerð og farflug en einnig um hlutverk fugla í íslenskri menningu og þjóðtrú.
Í ríki fuglanna er margt sem kemur skemmtilega á óvart og því miðlar FRIÐLAND FUGLANNA með algerlega nýjum hætti. Hver fugl hefur sögu að segja hvort sem um er að ræða vísindalegar staðreyndir, blaðafréttir, þjóðsögur eða hindurvitni.
Sýningarmunir eru bæði uppsettir fuglar, textar, myndir og kvikmyndir en einnig snertanlegir munir þar sem gera má einfaldar tilraunir sem skýra eðlisfræði flugsins, hvernig mismunandi goggar og klær hæfa mismunandi fæðuvali og hvernig lögun eggja hæfir mismunandi
búsetuskilyrðum.
Frá Húsabakka og Dalvík liggja fallegar gönguleiðir um Friðland Svarfdæla með upplýsingaskiltum og fuglaskoðunarstöðum. Sjá kort
Hvar er sýningin?
Sýningin er opin frá kl 12-17 alla daga í sumar og í vetur eftir samkomulagi.
Aðgangseyrir er kr. 800 fyrir fullorðna og kr. 400 fyrir börn

FALLEG, FRÓÐLEG OG FRUMLEG SÝNING FYRIR FUGLAFRÆÐINGA Á ÖLLUM ALDRI !
621 Dalvík
Sími: 466 1551
nattursetur@simnet.is
Hjörleifur Hjartarson
Verkefnisstjóri
Sími: 466 3370
GSM: 861 8884
hjhj@rimar.is