Nágrannavarsla
Nágrannavarsla felst í samvinnu nágranna um að gera umhverfi sitt og heimili öruggari. Með því móti er leitast við að draga úr innbrotum, þjófnaði og skemmdarverkum. Nágrannavarsla hefur verið þekkt í áratugi og hefur víða verið sett upp með góðum árangri bæði á Íslandi og víða erlendis.
Húsnæði sem stendur autt til lengri tíma getur verið auðvelt skotmark innbrotsþjófa, hægt er að grípa til ýmissa ráðstafana til að draga úr líkum á innbroti. Gott er að geta leitað til nágranna þegar farið er í frí og fá þá til að líta til með húsnæðinu. Sumir skiptast á lyklum og fá nágranna til að fjarlægja póst, kveikja ljós hreyfa gluggatjöld og henda rusli í tunnuna. Einnig er hægt að fá nágranna til að nota bílastæði við heimilið.
Mikilvægt er að nágrannar séu almennt vakandi fyrir óvenjulegri umferð í sínu hverfi. Eftirtektarsamir einstaklingar hafa oft getað hjálpað til við að upplýsa mál með því að gefa lögreglu upplýsingar. Verði innbrotsþjófar og skemmdarvargar varir við að virkt eftirlit er í gangi eykur það líkur á því að þeir færi sig á önnur mið.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Sjóvá en einnig er hægt að hafa samband við fulltrúa Sjóvár á Dalvík fyrir nánari leiðbeiningar.

Dalvíkurbyggð






