Vignir Hallgrímsson myndlistasýning - 9.júní, laugardagur kl. 15:00
Myndlistamaðurinn Vignir Hallgrímsson heldur nú í fyrsta skipti sýningu í Bergi menningarhúsi. Vignir hefur haldið fjölda einka – og samsýninga í gegnum tíðina, bæði hér í sveitarfélaginu og annars staðar. Á sýningunni verða ný verk eftir Vigni.
Svarfaðardalsfjöll – 19. júní, þriðjudagur kl. 20:00
Bjarni Guðleifsson heldur hér erindi um bók sína Svarfaðardalsfjöll. Á árunum 1995-2003 gekk Bjarni ,við fjórða mann, hreppamörkin umhverfis Svarfaðardalshrepp. Þetta reyndist þeim félögum mikið og ánægjulegt ævintýri og er ekki vitað til að aðrir hafi gengið þessa leið. Þeir byrjuðu á Hámundarstaðahálsi og enduðu í Ólafsfjarðarmúla en höfðu á leið sinni gengið yfir 75 tinda og álíka mörg skörð. Bjarni tók saman myndskreytta bók um þetta ferðalag og mun Bjarni kynna efni hennar í máli og myndum.
„Tónlist frá ýmsum löndum – Rússland, Ítalía, Svíþjóð, Ísland, Rúmenía og Írland“ tónleikar með Kammerkórnum Stillu - 5. júlí, fimmtudagur kl. 20:00.
Kammerhópurinn Stilla er skipaður strengjakvartett og söngvurum. Á tónleikunum verður leikið allt frá eldfjörugum þjóðlögum til hádramatískra sönglaga, auk þess sem dúettar og tríó úr heimi óperunnar fá að hljóma. Flutt verða verk eftir Rachmaninoff, Bellini, Sibelius o.fl. auk íslenskra söngperla á borð við Rósina eftir Friðrik Jónsson / Guðmund Halldórsson. Strengjakvartettinn flytur svo fjöruga þjóðdansa í eigin útsetningum.
Valgerður Hafstað, myndlistasýning - 7.júlí, laugardagur kr. 14:00
Myndlistakonan Valgerður Hafstað er mörgum kunn en hún lést á síðasta ári. Valgerður var nýflutt til Íslands, eftir margra ára búsetu erlendis, og var á leið til dvalar á Dalbæ, dvalarheimilinu á Dalvík. Valgerður hélt fjölda einkasýninga auk þess að taka þátt í samsýningum víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Af verkum Valgerðar á Íslandi má nefna steinda glugga í Tjarnarkirkju í Svarfaðardal og veggskreytingu í Varmahlíðarskóla í Skagafirði auk fjölda málverka í einkaeigu. Á sýningunni verður úrval verka hennar til sýnis en Valgerður málaði mest abstractverk.
Tónlistarhátíðin BERGMÁL - 6.-9. ágúst, mánudagur – fimmtudagur
Í þriðja sinn fer af stað tónlistarhátíðin BERGMÁL. Dagskráin í ár er afar metnaðarfull.
Mánudagurinn 6. ágúst Fjölskyldutónleikar – Ævintýrið um Búkollu
Þriðjudagurinn 7. ágúst Í leit að glötuðum tíma – öndvegisverk franskra kammertónbókmenntir
Miðvikudagurinn 8. ágúst Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
Fimmtudagurinn 9. ágúst Leikhústónlist á tímum andspyrnu
Innviði, ljósmyndasýning - 10. ágúst, föstudagur kl. 14:00
Ljósmyndarinn Orri Jónsson hefur um árabil myndað íslensk eyðibýli og á sýningunni Innviðir birtist yfirlit eyðibýlamynda hans frá árunum 1999-2010. Ljósmyndirnar fanga litríkan anda sem ríkir í innviðum býlanna og þá fjölskrúðugu litapallettu sem skapast þegar óreiðukennt veðurfar vinnur á veggfóðri, málningu og húsgögnum. Þær skrásetja hverfandi veruleika, veðrunina og híbýli og fanga þannig áru hins yfirgefna.
South River Band tónleikar - 11. ágúst, laugardagur kl. 20:30
Sönggleðin er við lýði hjá þessari skemmtilegu hljómsveit sem spilar að eigin sögn blöndu af tónlist frá Balkanskaganum, norrænni þjóðlagamúsík, keltneskum þjóðlagastíl, bandarísku blúgrassi, blandað suðrænum blæ og hugsanlega eitthvað meira í bland. Einskonar heimshornarþjóðlagatónlist.
Netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Berg menningarhús á Dalvík
var formlega opnað
5. ágúst 2009.