Svavar Alfreð Jónsson, prestur í Akureyrarkirkju, opnar hér ljósmyndasýningu sína um Eyfirska fossa í Bergi.
Svavar ferðaðist um Eyjafjörðinn sumarið 2010 og tók myndir af fossunum sem margir eru vel faldir í myrkri gilja og gljúfra. Þrátt fyrir að fossarnir séu ekki í hópi stærstu og kraftmestu fossa landsins eru þeir allir afreksfossar, hver með sínu lagi. Sumir háir og renglulegir og lufsast fram af hengifluginu með slitróttum ym. Aðrir bosmamiklir og sperra fram bringuna um leið og þeir kasta sér niður i þverhnípið með þungum og nötrandi drunum. Mikið vantar í upplifun okkar af Eyjafirði séu fossarnir þar ekki enda eru þeir veigamikill þáttur í náttúrudásemdum héraðsins.
Sýningin verður opin frá 15. janúar til 5. febrúar frá kl. 12:00-18:00 virka daga og á milli kl. 14:00-17:00 um helgar.
Netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Berg menningarhús á Dalvík
var formlega opnað
5. ágúst 2009.