Menningarhúsið Berg

Menningarhúsið Berg er menningarhús íbúa Dalvíkurbyggðar. Í húsinu verður fjölbreytt starfsemi en leitast verður við að skapa veglega umgjörð og aðstöðu utanum hvers kyns menningarstarfsemi til dæmis listsýningar, tónlistarflutning og menningartengda ferðaþjónustu auk þess að geta boðið upp á aðstöðu fyrir ráðstefnuhald.