Svarfdælskur Mars 2013, 21. -24. mars
Svarfdælski marsinn er menningarhátíð þar sem ýmislegt er gert til gamans svo sem að keppa að heimsmeistaratitli í brús og dansa Svarfdælskan Mars.
Fyrir þá sem ekki þekkja heimsmeistaramótið í brús þá fer þar fram keppni í spili sem nefnist brús. Spilið hefur lengi verið spilað í Svarfaðardalnum og er því viðeigandi að þar skuli fara fram árlega heimsmeistaramótið í þessu spili. Nýgræðingar ættu ekki að láta sig vanta en venjulega fer fram kennsla í spilinu svo að sem flestir geti tekið þátt.
Fimmtudagur 21. mars
Stórmyndin Land og synir sýnd í Bergi kl. 20:00
Bíómynd Ágústs Guðmundssonar frá 1979, að mestu tekin í Svarfaðardal, sýnd í Bergi.
Föstudagur 22. mars
Heimsmeistarakeppni í brús að Rimum kl. 20:30.
Keppt um gullkambinn. Æfinga- og kennslubúðir í hliðarsal.
Laugardagur 23. mars
Svarfdælskar fornsögur í Bergi kl. 14:00
Þórarinn Eldjárn og Eva María Jónsdóttir fjalla um rannsóknir sínar og skrif um Svarfdælasögu.
LOKSINS Á HEIMASLÓÐ!
Hundur í óskilum – SAGA ÞJÓÐAR í Bergi laugardag kl. 16:00
Laugardagskvöld 23. mars:
Marsinn tekinn að Rimum . Húsið opnar kl. 21.00 og talið í marsinn kl. 21.30.
Sunnudagur 24. mars
Sögufjelag Svarfdælinga. Undirbúningsfundur vegna stofnunar Sögufélags Svarfdælinga í matsalnum á Húsabakka kl. 14. Allt áhugafólk velkomið!
Frekari upplýsingar veitir Hjörleifur Hjartarson á netfanginu hjhj@rimar.is eða í síma 861 8884













