Vinnureglur menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála
Til grundvallar vinnureglnunum er Menningarstefna Dalvíkurbyggðar
1. gr.
Sjóðurinn heitir Menningar- og viðurkenningarsjóður menningarráðs Dalvíkurbyggðar.
2. gr.
Markmið sjóðsins eru:
a) Að styrkja og styðja einstaklinga, frjáls félagasamtök og hópa í sveitarfélaginu með það að leiðarljósi að stuðla að öflugu og frjóu lista- og menningarlífi í Dalvíkurbyggð.
b) Að veita viðurkenningar til félaga, hópa, fyrirtækja og stofnana fyrir að stuðla að eflingu menningarlífs í sveitarfélaginu og vinna að mikilvægum menningarmálum í Dalvíkurbyggð.
3. gr.
Tekjur sjóðsins eru:
a) Árlegt framlag úr aðalsjóði Dalvíkurbyggðar skv. fjárhagsáætlun sem menningarráð gerir tillögu um ár hvert (Liður 05-81-9110).
b) Frjáls framlög og áheit.
4. gr.
Menningarráð Dalvíkurbyggðar skipar stjórn sjóðsins. Ráðið auglýsir í upphafi árs eftir umsóknum um styrki fyrir það ár. Stjórn sjóðsins getur eftir nánari ákvörðun hverju sinni ákveðið að veita styrki með eða án auglýsingar og á öðrum tíma enda sé það sammála um slíka fjárveitingu. Styrkumsóknir skulu berast sjóðstjórn skriflega á þar til gerðum eyðublöðum og samkvæmt ákvæðum um umsóknir sem eru hluti af vinnureglum þessum.
5. gr.
Við afgreiðslu umsókna um styrki úr sjóðnum og hverjir teljast styrkhæfir skal Menningarstefna Dalvíkurbyggðar höfð til hliðsjónar.
Skilyrt er að umsækjandi eigi lögheimili í Dalvíkurbyggð.
Verkefni/atburðir skulu eiga sér stað á almanaksárinu sem styrkveiting fer fram. Er styrkþegi auglýsir atburðinn/verkefnið skal hann geta þess að Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar hafi styrkt það.
Greiðsla á styrkjum fer fram þegar styrkþegi hefur skrifað undir samning við sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar um verkefnið. Ef styrkþegi svarar ekki kalli að koma í samningsgerð fellur styrkveitingin niður.
Í samningum kemur fram hvenær styrkþegi skal skila greinargerð að verkefni loknu. Ef breyting verður á verkefninu eða tímaáætlun þess skal leita samþykkis sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs. Menningarráði er heimilt að krefjast endurgreiðslu á styrkfé ef gefnar hafa verið upp rangar upplýsingar í umsókn eða ef greinargerð berst ekki.
6. gr.
Styrkupphæðir úr sjóðnum miðast við fjárhagsgetu sjóðsins hverju sinni.
Ákvæði um umsóknir:
Styrkumsóknir skulu berast sjóðstjórn á þar til gerðum eyðublöðum og undirritaðar af umsækjanda og/eða aðila sem heimild hefur að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjanda ef um félag eða hópa er að ræða.
Mikilvægt er að greinargóðar upplýsingar komi fram á umsóknareyðublaðinu og það sé vel útfyllt.
Menningarráð vísar frá umsóknum þar sem fullnægjandi upplýsingar koma ekki fram.
• Félög og/eða hópar sendi inn ársreikning síðasta liðins árs og fjárhagsáætlun þess árs sem um ræðir.
Umsóknir skulu stílaðar á Menningar- og viðurkenningarsjóð menningarráðs, Ráðhúsinu 620 Dalvik .
Samþykkt í menningarráði þann 25. ágúst 2010
Samþykkt i bæjarstjórn þann 21. september 2010













