Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Félagasamtök í Dalvíkurbyggð

Slysavarnadeildin á Dalvík
Slysavarnadeildin á Dalvík var stofnuð 21. maí 1934 og er með um 140 félagskonur á skrá í dag. Deildin hefur í gegnum tíðina haft á sér orð fyrir að vera mjög virk og framsýn og til hennar er leitað með margvísleg verkefni, bæði innan landssamtakanna sem utan og þykir góð heim að sækja. 


Björgunarsveitin Dalvík
Björgunarsveitin á Dalvík er félagsskapur áhugamanna um slysavarnir og útivist. Hús Björgunarsveitarinnar er að Gunnarsbraut 4 við hlið Slökkviliðs og Lögreglunnar á Dalvík. Tækjakostur sveitarinnar er tveir Land Rover jeppar, þrír vélsleðar, tveir snjóbílar, slöngubátur og rústakerra. Mjög öflugt unglingastarf er rekið af Björgunarsveitinni og kallast sá hópur Dasar.


Bridgefélag Dalvíkur
Formaður félagsins er Ingvar Páll Jóhannsson, sími 847 4489 og netfang ipj@simnet.is      

Félag eldri borgara í Dalvíkurbyggð
Félagið heldur uppi öflugu tómstunda- og félagsstarfi í húsnæði sínu í Mímisbrunni, Mímisvegi 6. Síminn í Mímisbrunni er 466 2090.Formaður er Ástdís Óskarsdóttir s: 4661558, netfang astdislilja@simnet.is . Umsjón með útleigu á Mímisbrunni hefur Helgi Björnsson Karlsbraut 13, s. 4661258

Golfklúbburinn Hamar
Golfklúbburinn Hamar var stofnaður 1989 og voru stofnmeðlimir 42. Golfklúbburinn rekur nú níu holu golfvöll í Arnarholti í Svarfaðardal um 7 km frá Dalvík. Golfvöllurinn er tvímælalaust ein af útivistarperlum Dalvíkurbyggðar í stórbrotnu umhverfi og nýtur mikilla vinsælda bæði meðal heimamanna og gesta. Veitingasalan er opin virka daga frá kl. 17:00 til 22:00 og um helgar frá 12:00-19:00, eða eftir þörfum. Frá 15/6 - 20/8 verður opið frá kl. 13.00 á virkum dögum. Allar helstu golfvörur ásamt gosi og sælgæti, kaffi og úrvals meðlæti ávallt í boði.
Símanúmer í golfskála er 466 1204.

Hestamannafélagið Hringur
Hestamennska er mikið stundið í Dalvíkurbyggð og þar er að finna stærsta hesthús landsins en áður hýsti það 4000 refi. Hesthúsinu er skipt upp í hesthús og sameiginlega aðstöðu en þar er að finna stórt reiðgerði og sýningarhring. Stutt frá húsinu er svo skeiðvöllur, keppnis og sýningaraðstaða Hestamannafélagsins Hrings.

Tilgangur Hestamannafélagsins Hrings er:
Að stuðla að réttri og góðri meðferð hesta og efla áhuga og þekkingu á ágæti þeirra og íþróttum.
Að sjá fyrir haga, húsi og hirðingu hesta félagsmanna eftir því sem ástæður leyfa.
Að bæta og auka reiðvegi um félagssvæðið og nálægar byggðir.
Að þessum tilgangi hyggst félagið ná með því m.a. Að:
a) Fræða félagsmenn og aðra með námskeiðum, fyrirlestrum og myndasýningum um eðli og sköpulag hesta og rétta meðferð á þeim.
b) Að halda og vanda sem best til kappreiða, íþróttamóta, góðhestakeppni og sýninga
c) Leita stuðnings opinberra aðila til umbóta á reiðvegum þeim sem enn eru til og til að opna nýjar reiðleiðir
Félagsmenn geta allir orðið, enda sé inntökubeiðni þeirra samþykkt á löglegum félagsfundi, borin upp af formanni. Inngöngubeiðni skal vera skrifleg. Þeir félagar sem verða sextán ára á almanaksárinu og yngri greiða ekki árgjald og hafa hvorki kosninga rétt né eru kjörgengir. Félagar, 70 ára og eldri, skulu undanþegnir árgjaldi en halda félagsréttindum sínum.

Kvenfélagið Tilraun
Kvenfélagið Tilraun starfar í Svarfaðardal og Skíðadal. Fjölbreytt starfsemi fer fram á vegum kvenfélagsins svo sem ýmis námskeið, fundir, ferðir og ýmislegt fleira. Kvenfélagið hefur stutt dyggilega við ýmsa líknarstarfsemi á svæðinu. Formaður félagsins er Ósk Sigríður Jónsdóttir í síma 865 1539.


Leikfélag Dalvíkur 
Leikfélag Dalvíkur var stofnað 1944. Leikfélagið gegnir stóru menningarlegu hlutveki í Dalvíkurbyggð. 
Tilgangur félagsins er að efla og iðka leiklist í Dalvíkurbyggð og nær þeim tilgangi með því að æfa og sýna leikrit, standa fyrir námskeiðum í leiklist, vera aðili að samtökum og samstarfi áhugafólks um leiklist og vera vettvangur fyrir hverskonar hópavinnu félagsmanna um leiklist.

Lionsklúbbur Dalvíkur


Lionsklúbburinn Sunna 
Lionsklúbburinn Sunna var stofnaður 1987 og er skipaður konum á aldrinum 25 – 85 ára. Nú starfa 17 konur með klúbbnum sem hittast annan þriðjudag í mánuði kl. 20.00, borða saman og funda. Sjónarmið klúbbsins er að leiða gott af sér í nærsamfélaginu, njóta þess að vera saman og skemmta sér. Sunna heldur nokkrar fjáraflanir ár hvert með það að markmiði að styrkja einstaklinga og þá sem á þurfa að halda. Einnig hefur klúbburinn haldið skíðamót á ári hverju í Böggvisfjalli og sundmót í samstarfi við sundfélagið Rán.  


Þær sem hafa áhuga á að koma og kynnast starfi klúbbsins og jafnframt að láta af sér gott leiða, geta haft samband við eftirfarandi:
Rúna Kristín Sigurðardóttir, formaður s: 696-8787

Skíðafélag Dalvíkur
Skíðafélag Dalvíkur rekur skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli ofan Dalvíkur. Á svæðinu eru tvær lyftur, neðri lyftan er af gerðinni Leitner og er 700 metra löng. Beint í framhaldi af henni er lyfta af gerðinni Doppelmayer og er hún 500 metra löng, samtals 1.200 metra langar og fallhæðin er 322 metrar. Einn snjótroðari sinnir daglegri troðslu á svæðinu og er annar til taks á álagstímum. Ný lýsing er á svæðinu, um 1.200 metra löng brekka er lýst. Nánari upplýsingar um svæðið fást hjá starfsmönnum þess á opnunartíma í símum 466-1010 og 466-1005.

Sundfélagið Rán, Dalvík
Æfingar eru í Sundlaug Dalvíkur mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Sundæfing fyrir 1- 4 bekk er kl. 16.30 –17.15.
Æfingatími hjá 5 bekk og eldri er kl. 17.15 –18.30.
Æfingagjöld eru 2.000 kr. á mánuði. Ath. systkinaafsláttur.
Þjálfari er Elín Björk Unnarsdóttir. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 4661679.
Ungmennafélag Svarfdæla
 
 
 
 
Framfarafélag Dalvíkurbyggðar
Félagið var stofnað árið 2002. Markmið félagsins er að vinna að eflingu byggðar og velferð fólks á félagssvæðinu með hverjum þeim hætti sem það kann að hafa tök á.

Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því:

  • Að laða til samstarfs einstaklinga, félög, samtök og fyrirtæki sem láta sig varða þróun byggðarlagsins og eflingu þess.
  • Að leggja áherslu á að hvert og eitt framlag einstaklinga, samtaka eða fyrirtækja getur skipt máli fyrir framtíð byggðarinnar.
  • Að stuðla að verndun náttúrulegra- og menningarlegra verðmæta í byggðarlaginu svo og sögulegra minja. Það vill í þessum efnum draga fram sérstöðu héraðsins og kynna hana.
  • Að beita sér fyrir kynningu á byggðarlaginu út í frá.
  • Að beita sér fyrir fræðslu um málefni sem skipt geta byggðarlagið miklu m.a. með námskeiðum eða í leshópum, og leitast með því við að auka færni fólks til starfa á sviði atvinnu- og menningarmála.


Félagið er aðili að samtökunum Landsbyggðin lifi og frekari upplýsingar um það má finna á heimasíðunni: www.landlif.is

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Sumarstörf

Viðburðadagatal

« maí 2013 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31