Félagasamtök í Dalvíkurbyggð
Björgunarsveit Dalvíkur
Björgunarsveitin á Dalvík er félagsskapur áhugamanna um slysavarnir og útivist. Hús Björgunarsveitarinnar er að Gunnarsbraut 4 við hlið Slökkviliðs og Lögreglunnar á Dalvík. Tækjakostur sveitarinnar er tveir Land Rover jeppar, þrír vélsleðar, tveir snjóbílar, slöngubátur og rústakerra. Mjög öflugt unglingastarf er rekið af Björgunarsveitinni og kallast sá hópur Dasar.Bridgefélag Dalvíkur
Formaður félagsins er Ingvar Páll Jóhannsson, sími 847 4489 og netfang ipj@simnet.is
Félag aldraðra
Golfklúbburinn Hamar
Golfklúbburinn Hamar var stofnaður 1989 og voru stofnmeðlimir 42. Golfklúbburinn rekur nú níu holu golfvöll í Arnarholti í Svarfaðardal um 7 km frá Dalvík. Golfvöllurinn er tvímælalaust ein af útivistarperlum Dalvíkurbyggðar í stórbrotnu umhverfi og nýtur mikilla vinsælda bæði meðal heimamanna og gesta. Veitingasalan er opin virka daga frá kl. 17:00 til 22:00 og um helgar frá 12:00-19:00, eða eftir þörfum. Frá miðjum 15/6 - 20/8 verður opið frá kl. 13.00 á virkum dögum. Allar helstu golfvörur ásamt gosi og sælgæti, kaffi og úrvals meðlæti ávallt í boði.
Símanúmer í golfskála er 4661204.
Hestamannafélagið Hringur
Hestamennska er mikið stundið í Dalvíkurbyggð og þar er að finna stærsta hesthús landsins en áður hýsti það 4000 refi. Hesthúsinu er skipt upp í hesthús og sameiginlega aðstöðu en þar er að finna stórt reiðgerði og sýningarhring. Stutt frá húsinu er svo skeiðvöllur, keppnis og sýningaraðstaða Hestamannafélagsins Hrings.
Tilgangur Hestamannafélagsins Hrings er:
Að stuðla að réttri og góðri meðferð hesta og efla áhuga og þekkingu á ágæti þeirra og íþróttum.
Að sjá fyrir haga, húsi og hirðingu hesta félagsmanna eftir því sem ástæður leyfa.
Að bæta og auka reiðvegi um félagssvæðið og nálægar byggðir.
Að þessum tilgangi hyggst félagið ná með því m.a. Að:
a) Fræða félagsmenn og aðra með námskeiðum, fyrirlestrum og myndasýningum um eðli og sköpulag hesta og rétta meðferð á þeim.
b) Að halda og vanda sem best til kappreiða, íþróttamóta, góðhestakeppni og sýninga
c) Leita stuðnings opinberra aðila til umbóta á reiðvegum þeim sem enn eru til og til að opna nýjar reiðleiðir
Félagsmenn geta allir orðið, enda sé inntökubeiðni þeirra samþykkt á löglegum félagsfundi, borin upp af formanni. Inngöngubeiðni skal vera skrifleg. Þeir félagar sem verða sextán ára á almanaksárinu og yngri greiða ekki árgjald og hafa hvorki kosninga rétt né eru kjörgengir. Félagar, 70 ára og eldri, skulu undanþegnir árgjaldi en halda félagsréttindum sínum.
Karlakór Dalvíkur
Tengiliður: Guðmundur Kristjánsson s: 660-3085
Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson
Kirkjukór Dalvíkurkirkju
Tengiliður: Anna Baldvina Jóhannesdóttir s: 864-5982
Stjórnandi: Hlín Torfadóttir
Kirkjukór Árskógskirkju
Kirkjukór Stærri-Árskógskirkju
Tengiliður: Hafey Lúðvíksdóttir s: 897-4950
Stjórnandi: Kaldo Kiis
Salka kvennakór
Tengiliður: Ása Björg Valgeirsdóttir s: 615-2412
Stjórnandi: Margot Kiis
Samkór Svardfæla
Tengiliður: Íris Ólöf Sigurjónsdóttir s: 892-1497
Stjórnandi: Helga Bryndís Magnúsdóttir
Mímiskórinn, kór aldraðra
Tengiliður:
Stjórnandi: Magnús G. Gunnarsson
Kvenfélagið Tilraun
Kvenfélagið Tilraun starfar í Svarfaðardal og Skíðadal. Fjölbreytt starfsemi fer fram á vegum kvenfélagsins svo sem ýmis námskeið, fundir, ferðir og ýmislegt fleira. Kvenfélagið hefur stutt dyggilega við ýmsa líknarstarfsemi á svæðinu. Formaður félagsins er Svana Halldórsdóttir í síma 845 9589
Leikfélag Dalvíkur
Leikfélag Dalvíkur var stofnað 1944. Leikfélagið gegnir stóru menningarlegu hlutveki í Dalvíkurbyggð.
Tilgangur félagsins er að efla og iðka leiklist í Dalvíkurbyggð og nær þeim tilgangi með því að æfa og sýna leikrit, standa fyrir námskeiðum í leiklist, vera aðili að samtökum og samstarfi áhugafólks um leiklist og vera vettvangur fyrir hverskonar hópavinnu félagsmanna um leiklist. Leikfélag Dalvíkur hefur undanfarin ár sett upp tvær sýningar á hverju ári, eina rétt fyrir áramót og aðra eftir áramót.
Lionsklúbbur Dalvíkur
Lionsklúbburinn Sunna
Lionsklúbburinn Sunna var stofnaður 1987 og er skipaður konum á aldrinum 25 – 85 ára. Nú starfa 17 konur með klúbbnum sem hittast annan þriðjudag í mánuði kl. 20.00, borða saman og funda. Sjónarmið klúbbsins er að leiða gott af sér í nærsamfélaginu, njóta þess að vera saman og skemmta sér. Sunna heldur nokkrar fjáraflanir ár hvert með það að markmiði að styrkja einstaklinga og þá sem á þurfa að halda. Einnig hefur klúbburinn haldið skíðamót á ári hverju í Böggvisfjalli og sundmót í samstarfi við sundfélagið Rán.
Þær sem hafa áhuga á að koma og kynnast starfi klúbbsins og jafnframt að láta af sér gott leiða, geta haft samband við eftirfarandi:
Rúna Kristín Sigurðardóttir, formaður s: 696-8787
Sundfélagið Rán, Dalvík
Sundæfing fyrir 1- 4 bekk er kl. 16.30 –17.15.
Æfingatími hjá 5 bekk og eldri er kl. 17.15 –18.30.
Æfingagjöld eru 2.000 kr. á mánuði. Ath. systkinaafsláttur.
Þjálfari er Elín Björk Unnarsdóttir. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 4661679.
Upplýsingar um önnur félagasamtök í Dalvíkurbyggð skulu berast upplýsingafulltrúa á netfangið margretv@dalvik.is

Dalvíkurbyggð






