Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

Aðventa og jól

Dalvíkurbyggð 2009

 Það er heilmikið um að vera í Dalvíkurbyggð um aðventu og jól þetta árið. Hér á eftir gefur að líta dagskrána í heild sinni en einnig er hægt að sjá viðburðina í viðburðadagatalinu okkar.

26. nóvember fimmtudagur
Föndurdagur fjölskyldunnar í Árskógarskóla kl. 17:00 - 20:00. Nemendur og fjölskyldur þeirra geta keypt efni til föndurgerðar í skólanum á vægu verði (frá ca. 100 – 1500 kr). Hafið með ykkur skæri, límstauk, liti(túss/tré), að jólaskapinu ógleymdu. Ekki senda börnin ein. Nemendur verða með kaffisölu í matsal til styrktar ferðasjóði sínum. Kaffihlaðborð kostar kr. 700 fyrir fullorðna, kr. 300. fyrir börn á skólaaldri og ókeypis er fyrir börn undir skólaaldri.

27. nóvember föstudagur
Bæjarskrifstofan: Jólaþorpið sett upp og íbúar hvattir til að koma og heimsækja það.
Við höfnina: Herbert Guðmundsson
Föndurdagur fjölskyldunnar í Dalvíkurskóla, kl. 16:00-19:30. Nemendur og fjölskyldur þeirra geta keypt efni til föndurgerðar í skólanum á vægu verði (frá ca. 100 – 1500 kr). Hafið með ykkur skæri, límstauk, liti(túss/tré), að jólaskapinu ógleymdu. Ekki senda börnin ein. Nemendur í 10. bekk verða með kaffisölu í hátíðarsalnum til styrktar ferðasjóði sínum. Kaffihlaðborð kostar kr. 800 fyrir fullorðna, kr. 400 fyrir börn á skólaaldri og ókeypis er fyrir börn undir skólaaldri. Á föndurdaginn ganga allir inn um aðalinngang.
Tónleikar í Bergi menningarhúsi kl. 20:30. Útgáfugleði Hjaltalín um Ísland ásamt Snorra Helgasyni, Sigríði Thorlacius og Heiðurspiltum. Forsala miða í kaffihúsinu. Húsið opnar kl. 19:30.
Kaffihúsið í Bergi menningarhús: Bláskel og brauð frá kl. 12:00-18:00.

28. nóvember laugardagur
Jólamarkaður á Skeiði:
Allt um jól, jólamarkaður á Skeiði í Svarfaðardal frá kl. 15.00-18:00.
Við höfnina: Jólahlaðborð haldið á Fosshóteli, pantanir í síma 466 2040. Herbert Guðmundsson á Við höfnina.
Byggðasafnið Hvoll: Opið frá kl. 14:00-17:00.
Gallerí Dóttir Skraddarans verður með opið milli kl.13:00-16:00. Almennur opnunartími er þriðjudaga – fimmtudaga frá kl. 13:00-16:00. Utan opnunartíma er hægt að hringja í síma 897 1034.
Gallerí Máni er með opið milli kl. 15:00-18:00. Heitt á könnunni og jólaglögg í boði. Einnig verður opið föstudaga milli kl. 16:00-18:00. Utan opnunartíma er hægt að hringja í síma 869 8702.
Stjarnan glermunir með opið milli 15:00-17:00. Almennur opnunartími er á fimmtudögum og föstudögum frá kl. 15:00-17:00. Utan opnunartíma er hægt að hringja í síma 866 0556.
Stærri-Árskógskirkja: Kl. 17:00 verður helgistund í kirkjunni og kveikt á leiðarlýsingu
Veislumiðlun: Jólahlaðborð Veislumiðlunar á Árskógssandi kl. 19:00. Pantanir í síma 820 1087 eða 820 1089.

29. nóvember sunnudagur
Jólamarkaður á Skeiði: Allt um jól, jólamarkaður á Skeiði í Svarfaðardal frá kl. 15.00-18:00.
Berg menningarhús: Húsið opnar í jólabúningi með huggulegri aðventu- og jólastemmningu kl. 14:30. Kveikt verður á jólatrjám og jólasýning opnar en á henni verður jólaskraut frá gamalli tíð, jólakort og jólamyndir úr byggðarlaginu. Kristjana Arngrímsdóttir syngur jólalög við undirleik Helgu Bryndísar Magnúsdóttur og Vefarinn-danshópur verður með jólasýningu, dans, söng og hljóðfæraleik. Kaffihúsið okkar verður opið frá kl. 14:00-17:00.
Við höfnina: Fjölskyldujólahlaðborð haldið á Fosshóteli. Pantanir í síma 466 2040

1. desember þriðjudagur
Bókaupplestur Bókasafnsins: Síðastliðin ár hefur Bókasafnið staðið fyrir lestri heimamanna úr jólabókum og verður engin breyting þar á í ár og hefst lesturinn kl. 20:30 í Bergi menningarhúsi. Auk heimamanna kynnir Björn Þorláksson nýjustu bók sína. 

2. desember miðvikudagur
Kynningarfundur um nágrannavörslu verður haldinn miðvikudaginn 2. des. kl. 17 – 19 í Bergi menningarhúsi.
Fulltrúi frá Sjóvá mætir á fundinn til að kynna verkefnið og eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að mæta og kynna sér um hvað nágrannavarsla snýst og fara yfir það hvort hún er eitthvað fyrir okkur. Sjóvá, Lögreglan og Bæjarstjórinn í Dalvíkurbyggð.

3. desember fimmtudagur
Lesið fyrir börnin:
Áfram verður lesið upp fyrir börn á fyrsta fimmtudegi mánaðarins kl. 17:00 á Bóksafninu og að þessu sinni verða lesnar jólasögur.
Salka kvennakór heldur jólatónleika sýna í Bergi menningarhúsi kl. 20:30. Kaffihúsið opið.

4. desember föstudagur
Leikfélag Dalvíkur sýnir verkið Blúndur og blásýra kl. 20:30.
Aðventukvöld í Vallarkirkju. Aðventukvöld Valla-Urða- og Tjarnarsóknar verður haldið í Vallakirkju kl. 20:30. Samkór Svardæla syngur, almennur söngur.
Kaffihúsið í Bergi menningarhúsi: Smörrebröd og tapas frá kl. 12:00-18:00.


5. desember laugardagur
Byggðasafnið Hvoll: Opið frá kl. 14:00-17:00. Fjölskyldudagur á byggðasafninu Hugrún Ívarsdóttir sem hefur rannsakað laufabrauðsgerð og munstur þeirra verður gestur á safninu frá kl. 14.30 – 16.30. Þar mun hún fjalla um laufabrauðsgerð í fortíð og nútíð. Einnig verður hún með sína gullfallegu dúka, svuntur ofl. til sýnis og sölu. Ekki er tekið við greiðslukortum.
Auk Hugrúnar þá ætlar Þröstur, 4 ára hressilegur strákur, að syngja nokkur jólalög fyrir okkur kl 15.15. Eftir sönginn hans verður svo samsöngur gesta og lesin jólasaga.
Veislumiðlun: Jólahlaðborð veislumiðlunar á Árskógssandi kl. 19:00. Pantanir í síma 820 1087 eða 820 1089
Gallerí Máni er með opið milli kl. 15:00-18:00. Heitt á könnunni og jólaglögg í boði. Einnig verður opið föstudaga milli kl. 16:00-18:00. Utan opnunartíma er hægt að hringja í síma 869 8702.
Leikfélag Dalvíkur sýnir verkið Blúndur og blásýra kl. 17:00.
Berg menningarhús: Jólamarkaður frá kl. 13:00-16:00, handverk og gjafavara eftir heimafólk. Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar kl. 13:00, 14:00 og 15:00 en það eru nemendur Helgu Bryndísar og Zsuzsanna sem spila. Kl. 17:00 verða svo tónleikar með Áshildi Haraldsdóttur þverflautuleikara og Katie Elizabet Buckley hörpuleikara. Jólasýningin verður opin og kaffihúsið er opið frá kl.11:00-16:00.


6. desember sunnudagur
Aðventukvöld í Stærri—Árskógskirkju klukkan 20:00.
Leikfélag Dalvíkur sýnir verkið Blúndur og blásýra kl. 20:30.


10. desember fimmtudagur
Aðventurölt milli kl. 20:00-22:00: Stjarnan glermunir á 5 ára afmæli þennan dag og því verður ýmislegt um að vera. Friðrik V. verður á staðnum og býður gestum og gangandi upp á eitthvað gott í gogginn. Auk þess verða góð tilboð á vörum í búðinni þetta kvöld og svo áfram frameftir desember. Kaffihúsið í Bergi menningarhúsi verður opið og þar verður létt og skemmtileg stemmning. Ílit verður með skemmtileg tilboð í gangi. Blómaval verður með opið, tilboð og ýmislegt í gangi.
Tónleikar í Dalvíkurkirkju kl. 20:30 en þar munu Kaldo og Margot Kiis spila lög með jólastemmningu. Aðgangseyrir 1.000 kr. og ekki er tekið við greiðslukortum.


11. desember föstudagur

Kaffihúsið í Bergi menningarhús: Jólabröns frá kl. 12:00-14:00.

12. desember laugardagur
Samkór Svarfdæla: Jólatónleikar með Samkór Svarfdæla í Dalvíkurkirkju kl. 16:00. Á efnisskránni verða íslensk jólalög ásamt Missa Brevis eftir Hayden.
Gallerí Máni er með opið milli kl. 14:00-21:00. Heitt á könnunni og jólaglögg í boði. Einnig verður opið föstudaga og laugardaga í desember milli kl. 14:00-19:00. Utan opnunartíma er hægt að hringja í síma 869 8702.
Við höfnina: Trúbadorinn Einar Höllu
Byggðasafnið Hvoll: Opið frá kl. 14:00-17:00.
Berg menningarhús: Jólamarkaður frá kl. 13:00-16:00, handverk og gjafavara eftir heimafólk. Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar kl. 13:00, 14:00 og 15:00 en það eru nemendur Helga, Pál og Ave sem spila. Jólasýningin verður opin og kaffihúsið er opið frá kl.11:00-16:00.


13. desember sunnudagur
Jólasveinarnir koma fram á svölum Kaupfélagshússins kl. 15:00.
Aðventukvöld í Dalvíkurkirkju kl. 20:00. Mikill söngur, tónlistaratriði, helgileikur. Ræðumaður kvöldsins: Felix Jósafatsson.


15. desember þriðjudagur
Jólasveinarnir koma á Árskógssand að versluninni Konný kl. 15:00.

18. desember föstudagur
Kaffihúsið í Bergi menningarhúsi: Jólasíldarborð kl. 12:00-18:00.

19 desember laugardagur
Gallerí Máni er með opið milli kl. 15:00-18:00. Heitt á könnunni og jólaglögg í boði. Einnig verður opið föstudaga milli kl. 16:00-18:00. Utan opnunartíma er hægt að hringja í síma 869 8702.
Berg menningarhús: Jólasýning opin. Kertasníkir, Kjötkrókur og Hurðaskellir koma í heimsókn kl. 14:00 og syngja og spjalla við börnin. Kaffihúsið opið frá kl. 11:00-16:00.

20. desember sunnudagur
Menningarhúsið Berg: Jólin koma, Íris Hauks og Snorri Eldjárn syngja vinsæl íslensk jóla-dægurlög kl. 17:00. Fjölskylduskemmtun. Aðgangseyrir 1000 kr. og frítt fyrir börn á grunnskólaaldri í fylgd með foreldrum.
Jólavaka í Tjarnarkirkju kl. 21:00:  Ösp Kristjánsdóttir syngur þjóðlög og jólalög við undirleik Arnar Eldjárns gítarleikara, einnig munu ungir sönggestir taka lagið. Ingibjörg Hjartardóttir rithöfundur les þekkta jólasögu. Tröllaskagakvartettinn tekur lagið en hann skipa, Helga Bryndís og Magni , Kristjana og Kristján. Boðið verður inn í bæ að dagskrá lokinni í jólaglögg og piparkökur. Aðgangseyrir kr. 1000 og vinsamlegast ath. að ekki er tekið við greiðslukortum!


21. desember mánudagur
Gallerí Dóttir Skraddarans
verður með opið milli kl.13:00-16:00. Almennur opnunartími er þriðjudaga – fimmtudaga frá kl. 13:00-16:00. Utan opnunartíma er hægt að hringja í síma 897 1034.
Menningarhúsið Berg: Brúðuleikhús kl. 17:00 með Bernd Ogrodnik á vegum sunnudagaskólans.

22. desember mánudagur
Gallerí Dóttir Skraddarans verður með opið milli kl.13:00-16:00. Almennur opnunartími er þriðjudaga – fimmtudaga frá kl. 13:00-16:00. Utan opnunartíma er hægt að hringja í síma 897 1034.

23. desember þorláksmessa
Við höfnina: Þorláksmessuskata og saltfiskur. Pantanir í síma 466 2040.
Jólapóstur samkvæmt hefð í Dalvíkurskóla. Skólinn er opinn frá kl. 13:00 – 16:00. Nemendur og starfsfólk taka á móti jólakortum í skólanum (inngangur nr.1). Nemendur í 7. bekk mæta kl. 12:45 til að flokka póst. Þeir nemendur sem verða jólasveinar á aðfangadag eiga að mæta kl. 12:45 þennan dag og flokka póst. Verð fyrir hvert kort er 50 kr. Jólasveinar
(nemendur úr 8. – 10. bekk) bera út jólakortin á aðfangadag frá kl 10:30 – 14:00. Öll vinna er unnin í sjálfboðavinnu. Unnið til styrktar skólabókasafni Dalvíkurskóla. Að gefnu tilefni skal tekið fram að borinn verður út póstur á Dalvík og í Svarfaðardal.
Gallerí Dóttir Skraddarans verður með opið milli kl.13:00-16:00. Almennur opnunartími er þriðjudaga – fimmtudaga frá kl. 13:00-16:00. Utan opnunartíma er hægt að hringja í síma 897 1034.
Tónleikar: Hátíðlegir Þorláksmessutónleikar með Eyþóri Inga, Matta Matt og hljómsveit í Dalvíkurkirkju. Nánar auglýst síðar.


24. desember aðfangadagur
Dalvík og Svarfaðardalur: Jólapósturinn borinn út.
Árskógssandur: Jólasveinarnir bera út pakka og annað góðgæti til íbúa.
Aftansöngur í Dalvíkurkirkju kl. 18:00.
Hátíðarmessa í Dalvíkurkirkju kl. 23:30 (altarisganga).

25. desember jóladagur
Hátíðarmessa í Vallakirkju kl. 16:00.
Hátíðarguðsþjónusta í Stærri-Árskógskirkju kl. 14:00.

26. desember annar dagur jóla
Hátíðarmessa á Dalbæ kl. 11:00.
Hátíðarmessa í Urðakirkju kl. 14:00.
Hátíðarmessa í Tjarnarkirkju kl. 16:00.


27. desember sunnudagur
Jólaball á Rimum í Svarfaðardal
kl. 14:00 á vegum Kvenfélagsins Tilraunar .
Jólaball í Árskógi kl. 16:00 sem Kvenfélagið Hvöt heldur.
Jólatónleikar með Karlakór Dalvíkur og Kvennakór Akureyrar. Tónleikarnir verða í Dalvíkurkirkju kl. 20:30.

28. desember mánudagur
Berg menningarhús: Tónleikar kl. 20:30. Nicole Vala Cariglia leikur einleik á selló.
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar: Opið frá 16:00-22:00.


29. desember þriðjudagur
Jólaball Lionsklúbbsins Sunnu í Víkurröst. Kaffi og smákökur í boði. Nánar auglýst síðar.
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar: Opið frá 10:00-22:00.

30. desember miðvikudagur
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar: Opið frá 10:00-22:00.
Íþróttamaður ársins í Dalvíkurbyggð verður kjörinn kl. 16:00 í Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju, á undan kjörinu er fundur íþrótta- og æskulýðsráðs og hefst hann kl. 15:30. Afhentar verða viðurkenningar fyrir tilnefningar til kjörs íþróttamanns Dalvíkurbyggðar, verðlaun fyrir góðan árangur og aðalverðlaunin, íþróttamaður Dalvíkurbyggðar. Að því loknu er boðið til kaffisamsætis og UMFS heldur upp á 100 ára afmæli sitt. Allir velkomnir.
Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar á Dalvík kl. 19:00 á Norðurgarðinum (sama stað og á Fiskidaginn) og er fólki ráðlagt að horfa á sýninguna frá frystihúsbakkanum. Þessi dagur er valinn vegna 100 ára afmælis UMFS.
Við höfnina: Tónleikar með Hölla Vals.

31. desember gamlársdagur
Brenna á Brimnesborgum á Árskógsströnd kl. 20:00.
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar: Opið frá 10:00-16:00.
Brenna austur á sandi á Dalvík kl. 17:00.

1. janúar, nýársdagur
Hátíðarmessa í Dalvíkurkirkju kl. 17:00.

6. janúar þrettándinn
Brenna við Rimar á vegum Ungmennafélagsins Þorsteins Svörfuðar kl. 20:30.

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Annáll 2009
  • Sorphirða
  • Nágrannavarsla

Viðburðadagatal

« september 2010 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30