Leikskólinn Leikbær er þátttakandi í þróunarverkefninu Töfraheimur stærðfræðinnar sem er tveggja ára verkefni. Grunnskóli Dalvíkurbyggðar hóf þátttöku haustið 2010 en leikskólarnir Leikbær og Kátakot í byrjun árs 2011. Verkefnið er styrkt af Sprotasjóði. Verkefnisstjóri og aðalleiðbeinandi er Dóróþea Reimarsdóttir meistaranemi í sérkennslufræðum með áherslu á stærðfræðinám. Hún er jafnframt verkefnastjóri sérkennslu á eldra stigi Grunnskóla Dalvíkurbyggðar.
Yfirmarkmið Töfraheims stærðfræðinnar er að bæta árangur nemenda í Dalvíkurbyggð í stærðfræði. Áhersla verður lögð á að auka þekkingu kennara og foreldra á námi og kennslu í greininni. Allir starfsmenn Leikbæjar taka þátt í verkefninu og haldinn verður fræðslufundur fyrir foreldra leikskólabarna. Í leikskólanum verður stærðfræði fléttuð inní daglegt starf. Farið verður í leiki sem tengjast stærðfræði, form skoðuð og gerðar kannanir allt eftir getu og aldri barnanna.
Góður talnaskilningur er mikilvæg forsenda stærðfræðináms. Því er mikilvægt að leggja snemma að honum góðan grunn. Eitt af því sem hentar vel til þess er að spila við börn. Hér fyrir neðan er tengill inn á lýsingar á gömlu góðu einföldu spilunum fyrir þá sem vilja getað rifjað þau upp. Ýmis teningaspil henta einnig vel. Við hvetjum foreldra, afa og ömmur til að spila við börnin, það er bæði ánægjulegt og lærdómsríkt.
Árskógi
621 Dalvík
Sími: 466-1971
Leikskólastjóri: Gitta Ármannsdóttir
leikbaer@dalvikurbyggd.is