Mars 2011

Þegar fer að líða að Bolludeginum fara börnin á Leikbæ út í náttúruna og finna sér greinar. Börnin taka síðan greinarnar með sér inn og skreyta þær að eigin vild.

Öskudagurinn er haldinn hátíðlegur á Leikbæ og búinn er til tunna til að slá köttinn úr. Tunnan saman stendur af mjólkurkössum og pappír sem er verið að endurnýta. Börnin fá síðan að skreyta tunnuna að eigin vild.

Maturinn sem við fáum kemur frá Dalvík. Þegar við fáum matinn fellur til álpappír sem við tökum til hliðar og leifum börnunum að vinna meira með. Eitt af því sem mjög gott er að vinna með álpappír er stafagerð.

Oft koma skemmtilegir vinir í heimsókn til okkar. Til að allir geti skoðað er vinurinn oft settur í stækkunar box

Yngstu börnin leika sér í könnunarleik. Þá fá börnin verðlausan efnivið og leika sér frjálst.

Í gönguferðum er notast við plastpoka ef þeir finnast út í náttúrunni annars höfum við með í för taupoka til að safna efnivið sem okkur langar að vinna með í leikskólanum.