1. október 2010
Farið var yfir hvað ætti að flokka og sýndu börnin fulltrúa foreldra hvernig unnið væri að þessum málum í leikskólanum. Skoðað var sérstaklega endurunnan pappír og fræðst um hann. Að lokum var farið með rusl í endurvinnslutunnuna. Var mikil ánægja hjá börnunum að segja og sýna fulltrúa foreldris frá umhverfis og endurvinnslumálum hér í leikskólanum.
22. september 2010
Fundur með umhverfisnefnd. Byrjað var að fræða börnin sem eru þátttakendur um hlutverk sitt og markmiðum með þessari nefnd. Nefndin skoðaði mynd af grænfánanum og ræddi um hvað þyrfti að gera til þess að öðlast slíkan fána svo sem flokkun, umgengni við náttúruna, hvort og hvað væri hægt að endurnýta og fleira.
Árskógi
621 Dalvík
Sími: 466-1971
Leikskólastjóri: Gitta Ármannsdóttir
leikbaer@dalvikurbyggd.is